Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1954, Blaðsíða 40

Kirkjuritið - 01.01.1954, Blaðsíða 40
Séra Vilhjálmur Briem 85 ára. Séra Vilhjálmur Briem átti 85 ára afmæli 18. jan. síðastl. Hann er fæddur 18. jan. 1869, sonur Eggerts Briem sýslumanns Skagfirðinga, sem þá bjó á Hjaltastöðum í Blönduhlíð. Séra Vilhjálmur varð stúd- ent 1890 og kandidat í guð- fræði frá Prestaskólanum 1892. Gerðist prestur í Goð- dölum í Skagafirði 1894, en varð að láta af prestsskap 1899 sakir heilsubrests. Fór hann þá utan til þess að leita sér lækninga, og tókst með stakri viljafestu og reglusemi að ná svo góðri heilsu, að hann gat tekið við störfum aftur, en fáir mundu þá hafa spáð honum langlífi. Hann var prestur að Staðarstað 1901—1912, en hefir síðan búið í Reykjavík og gegnt ýmsum störfum, t. d. við Landsbanka íslands og haft forstöðu Söfnunarsjóðsins. Tók hann við því starfi af séra Eiríki Briem, bróður sínum, sem stofnaði Söfnunarsjóðinn. Var hann þjóðkunnur reiknings- maður, en þeir, sem vel til þekkja, segja, að séra Vilhjálmur gefi honum ekki eftir i þeirri list. Kona séra Vilhjálms er Steinunn Pétursdóttir frá Álfgeirs- völlum. Voru þau systkini mörg og gerfileg svo að af bar. Allur þorri jafnaldranna er nú horfinn af sjónarsviðinu. En einnig margir þeir, sem yngri eru, mega góðs minnast frá þessum merku hjónum. M.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.