Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1954, Page 41

Kirkjuritið - 01.01.1954, Page 41
Séra Jakob Jónsson íimmtugur. Hinn 20. janúar síðastl. átti séra Jakob Jónsson, prestur Hallgrímssafnaðar, fimmtugs- afmæli. Hann fæddist á Hofi í Alftafirði eystra, sonur séra Jóns Finnssonar og konu hans Sigríðar Beck. Varð stúdent 1924 og gekk þá að guðfræði- námi eins og margir úr þeim bekk, „viginti quattuor“. Kandidat í guðfræði varð hann 1928, og gerðist þá, eftir stutta þjónustu sem aðstoðar- prestur föður síns, sóknar- prestur í Norðfjarðarpresta- kalli. Árið 1934 fór hann til Canada og var þar við fram- haldsnám við Manitobaháskóla, en þjónaði því næst mörgum söfnuðum, einkum i Saskatchewanfylki, þar til honum var veitt Hallgrímsprestakall í Reykjavík 1941, og hefir hann gegnt því embætti síðan ásamt þeim séra Sigurbirni Einars- syni, prófessor, og séra Sigurjóni Árnasyni. Séra Jakob liefir lagt gérva hönd á fleira en prestsskap, svo sem kennslu. En sérstaklega má nefna hér ritstörf hans °g þó einkum leikrit. Hafa þau verið leikin á ýmsum stöðum, °g m. a. í Þjóðleikhúsinu „Tyrkja-Gudda“. Er það mikið og mikilfenglegt verk, sem hlýtur að eiga sér framtið. Séra Jakob er kvæntur Þóru Einarsdóttur úr Reykjavík °g eiga þau tvær dætur og þrjá syni. Hugheilar kveðjur berast þeim í tilefni þessa hálfrar aldar afmæhs M.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.