Kirkjuritið - 01.01.1954, Síða 46
70 ára afmœli Bergsstaðakirkju.
Hinn 2. ágúst 1953 var hátíð að Bergsstöðum í tilefni 70 ára
afmælis kirkjunnar þar á staðnum. Fjölmennti safnaðarfólk
mjög til staðarins þennan dag, svo og margir góðir gestir. Láta
mun nærri, að þar hafi 120 manns verið saman komið.
Athöfnin hófst með guðsþjónustu. Prófasturinn í Húnavatns-
prófastsdæmi, séra Þorsteinn B. Gíslason, prédikaði, en sóknar-
presturinn, séra Birgir Snæbjömsson, þjónaði fyrir altari. Söng
annaðist kór Bergsstaðakirkju. Er kórinn mjög vel þjálfaður,
enda naut hann á síðastliðnum vetri tilsagnar söngkennarans
Kjartans Jóhannessonar. Undirleik annaðist kirkjuorganistinn,
Óskar Guðmundsson frá Eiríksstöðum, af smekkvísi, enda er
hann mjög áhugasamur um starf sitt.
Sóknamefndin annaðist allan undirbúning hátíðarinnar og að
messu lokinni veitti hún kirkjugestum góðgjörðir af mikilli
rausn. Var þá á ný gengið til kirkju og hófst þar samveru-
stund í tilefni afmælisins.
Sóknarpresturinn flutti ávarp og formaður sóknarnefndar,
Guðmundur Jósafatsson, minntist presta þeirra, er þjónað höfðu
þar síðastliðin 70 ár, og flutti mjög snjallt erindi um sögu
kirkjunnar. Kirkjan, sem nú stendur á staðnum, var byggð
sumarið 1883. Helztir ráðamenn byggingarinnar voru þeir séra
Stefán M. Jónsson, Bergsstöðum, og Guðmundur Gíslason,
hreppstjóri, Bollastöðum. Umsjón með smíðinni sjálfri hafði
Þorsteinn kirkjusmiður Sigurðsson, en honum helzt til aðstoðar
var Eiríkur Jónsson, er síðar bjó að Djúpadal í Skagafirði. —
M. a., er til máls tóku, var prófasturinn Þorsteinn B. Gíslason,
Steinnesi. Milli ræðna var kórsöngur, svo og almennur söngur.
í tilefni afmælisins bárust kirkjunni ýmsar góðar gjafir.
Eins og áður er sagt, sá sóknarnefndin um undirbúning
allan að hátíðinni. Var það almanna rómur, að henni hefði vel
tekizt að gera stundirnar hátíðlegar og eftirminnilegar.
í sóknamefnd eru nú þeir Guðmundur Jósafatsson, ráðunaut-
ur, Austurhlíð, form., Sigvaldi Halldórsson, bóndi að Stafni, og
Stefán Sigurðsson, bóndi að Steiná.
B. Sn.