Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1954, Qupperneq 47

Kirkjuritið - 01.01.1954, Qupperneq 47
Innlendar fréttir. Séra Jósef Jónsson hefir hinn 6. þ. m. og samkvæmt eigin ósk fengið lausn frá Prestskap í Setbergsprestakalli og prófastsstörfum í Snæfells- nessprófastsdæmi frá 1. júní næstkomandi að telja. Séra Jósef lauk embættisprófi í guðfræði við Háskóla íslands vorið 1915. Vígður 24. júní s. ár að Barði í Fljótum, en gerðist arið eftir aðstoðarprestur séra Jóns Halldórssonar á Sauðanesi. Settur prestur í Staðarhólsþingum frá fardögum 1918. Veitt Setbergsprestakall frá 1. júní 1919 og hefir starfað þar síðan. Hann hefir verið prófastur í Snæfellsnessprófastsdæmi frá 1. Íúní 1934. ^mbaettispróf í guðfræði. Þessir kandídatar luku embættisprófi 30. janúar 1954. Eru serefnisritgerðir þeirra tilgreindar: Bjami Sigurðsson: Um Markúsarguðspjall. Hver er höfundur þess? Hvar og hvenær er það ritað? Kári Valsson: Bréf til Efesusmanna eftir Ignatius fra Antíokkíu. Sigurður H. Guðjónsson: Freisting Jesú. Sverr- lr Haraldsson: Séra Einar Sigurðsson frá Heydölum. Þórir Stephensen: Gottskálk Nikulásson. Örn Friðriksson: Stefán biskup Jónsson. ^irkjuvígslur. Hinn 6. desember 1953 vígði dr. Bjarni Jónsson, er þá gegndi iskupsembættinu, nýreista kirkju í Norðtungu. 29. nóvember endurvígði hann Oddakirkju eftir gagngera við- gerð. * Sera Bragi Friðriksson. Hitstj. Kirkjuritsins hefir nýlega borizt bréf frá honum. erð hans vestur til Lundar Man. gekk vel, og líður þeim Jónum þar ágætlega. Starfið er mikið, og hefir séra Bragi Pegar flutt margar messur bæði á íslenzku og ensku. Við vígslu nýrrar kirkju að Gimli flutti hann kveðjur frá kirkju íslands.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.