Kirkjuritið - 01.06.1954, Page 18

Kirkjuritið - 01.06.1954, Page 18
256 KIRKJURITIÐ rekinn úr skóla. Tuttugu og fimm ára gamall var hann gerður útlægur frá Kiev og hvarf þá til Norður-Rúss- lands, þar sem lá við að hann yrði enn rekinn í útlegð. En þá gekk stjórnarbyltingin yfir. Áður en hér var komið sögu hafði hann þó sagt skilið við kommúnismann og horfið á ný til grísk-kaþólskrar trúar. Eftir októberbyltinguna bauð Bolsévikaflokkurinn hon- um þó kennaraembætti í heimspeki við háskóla í Moskvu. En brátt féll hann í ónáð hjá þeim, er hann féllst ekki á allar þeirra kreddur, og var honum tvívegis varpað í fangelsi og loks rekinn úr landi 1932. Settist hann þá fyrst að í Berlín, þar sem hann opnaði rússneskan skóla í heimspeki og trúarbrögðum, en hrökklaðist þaðan á dögum Hitlers til Clamart í nánd við París, þar sem hann hélt áfram líkri kennslu, nema hvað hann kenndi um tíma við Sorbonne. Hann andaðist í Clamart 24. marz 1948. Fjöldamargar bækur gaf hann út, sem jafnóðum voru þýddar á enska tungu, eins og t. d.: The Destiny of Man, Spirit and Reality og Slavei'y and Freedóm, allt mjög at- hyglisverð rit. Jafnvel nú eftir dauða hans hafa komið út ekki færri en þrjár bækur eftir hann á Englandi, nú á síðastliðnu ári Truth and Revelation (Translated from the Russian by R. M. French. Geoffrey Bles, London. 15s) • Frelsi andans. Berdyaev var fremur spámaður en heimspekingur. Sumt í hugsunarhætti hans kemur vestrænum mönnum ókunn- uglega fyrir sjónir, en einmitt fyrir þá sök er fróðlegt að lesa rit hans. Þegar hann talar um sannleika, á hann t. d. ekki fyrst og fremst við rétta þekkingu á einhverjum ytra hlut. Sannleikurinn er hugmynd, sem lostið hefir niður í sál mannsins frá æðra heimi, en kemur síðan til að hafa umskapandi áhrif á líf hans og starf. Hið guðlega líf er alltaf að berjast til valda í vitundarlífi mannsins,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.