Kirkjuritið - 01.06.1954, Qupperneq 20
258
KIRKJURITIÐ
veit dæmi um, er sá verstur, sem lagður hefir verið á
mennina í nafni Guðs.
Frelsisþrá rússnesku þjóðarinnar er á sígildan hátt lýst
í hinni frægu skáldsögu eftir Fyodor Dostoevsky: Kara-
mazovbrœður, í frásögninni af rannsóknardómaranum
mikla, sem lætur handtaka Jesú, er hann kemur til jarðar-
innar á ný, og dæmir hann á bálið. ,,Þú þóttist ætla að
gera mennina frjálsa," mælti hann, ,,en þetta frelsi hefir
orðið okkur dýrkeypt. 1 f jöldamargar aldir erum við búnir
að berjast við þetta frelsi þitt, sem mennimir hafa ekkert
með að gera og nota sér aðeins til óþurftar. Nei, þá sá
fjandinn betur: Gefið þeim brauð, og fyrir það eru þeir
reiðubúnir að selja frelsi sitt og frumburðarrétt." I skap-
gerð rannsóknardómarans er ofið þáttum úr hugsunar-
hætti Jesúíta og kommúnista. Hann ímyndar sér, að hann
vilji vel. En af því að mennirnir eru ekki frelsinu vaxnir,
verður hann að taka sér einræðisvald yfir þeim. Allt er
skipulagt: heimilislíf þeirra, störf þeirra og skemmtanir,
hugsanir þeirra og vilji. Aldrei má hin algóða forsjón
rannsóknardómarans af þeim líta, svo að þeir fari sér
ekki að voða. Mennirnir verða að eins konar verkfæmm
eða viljalausum vinnudýrum í höndum hinna útvöldu
stjórnenda. Dostoevsky sá með skyggnum augum, hvað
koma mundi í þeim þjóðfélögum, sem hættu að trúa á
frelsi Krists, en féllu fyrir freistingum Satans í eyðimörk-
inni. Dýrin en ekki mennirnir geta lifað af einu saman
brauði.
Benjamín Kristjánsson.
★
Nýr biskup á Finnlandi.
Dr. G. Olof Rosenqvist prófessor í guðfræði í Ábo hefir
nýlega verið kosinn biskup í Borgábiskupsdæmi. Hlaut lang-
flest atkvæði við biskupskjör. Hann er í stjórn Kirknasam-
bands Norðurlanda. Fæddur 1893.