Kirkjuritið - 01.06.1954, Síða 23

Kirkjuritið - 01.06.1954, Síða 23
AFMÆLISDAGAR 261 Eftir kandidatsprófið gegndi hann um hríð prédikunarstarfi í veikindaforföllum prestsins að Vallanesi, og framhaldsnám hans, einkum í trúarsálarfræði, helgi- siðafræði og kennimannlegri guð- fræði benti til þess, að hann ætl- aði sér að starfa í kirkjunni. Og þótt atvik ráði því, að hann fór inn á aðra braut, er hann kirkj- unnar maður og má telja hann í hópi presta. Kona hans er Sigrún Sigurþórs- dóttir og eiga þau þrjá syni og tvær dætur, og auk þess eina fóst- urdóttir. Séra Giinnar Jóhannesson fimmtugur. Séra Gunnar Jóhannesson er fæddur 7. júní 1904 að Hamri í Laxárdal í Suður-Þingeyjar- sýslu, sonur hjónanna Jóhannes- ar Eyjólfssonar og Kristinar Jó- hannesdóttur. Fluttist hann með þeim að Fagradal á Hólsfjöllum. Hann varð stúdent frá Mennta- skólanum á Akureyri 1928 og kandidat í guðfræði frá Háskólan- um 1932. Gerðist hann þá prestur í Stóra-Núps prestakalli með bú- setu á Skarði og þjónaði um hríð einnig Hrunaprestakalli. Séra Gunnar er búhöldur góð- ur. Hann er víðlesinn og þykir ræðumaður mikill. Er einkum tækifærisræðum hans við brugðið. Kona hans er Áslaug Gunnlaugsdóttir og eiga þau 4 börn, þrjár dætur og einn son. Kirkjuritið sendir öllmn „afmælisbörnunum“ hugheilar kveðjur og árnar þeim heilla í lífi og starfi. Þórarinn Þórarinsson skólasíjóri.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.