Kirkjuritið - 01.06.1954, Qupperneq 47
FRÉTTIR
285
Með séra Þorvaldi Jakobssyni er fallinn í valinn einn af
öiætustu prestum kirkjunnar og einn hinn lærðasti mennta-
ftiaður lands vors.
Ásgeir Ásgeirsson.
*
Erlendar fréttir.
Alheimskirkjuráðið (World Council of Churches)
Annað fulltrúaþing alheimskirkjuráðsins verður haldið í
Evanston í Bandaríkjunum í ágúst n. k. Alls munu mæta
þar um 500 fulltrúar frá 161 kirkjufélagi í 48 löndum, auk
þess verða þar margir áheymarfulltrúar og sérfræðingar í
ymsum greinum, æskulýðsleiðtogar og aðrir kirkjumenn.
Áætlað er, að þingið sæki um 1200 manns.
Forseta Bandaríkjanna hefir verið boðið að heimsækja
þingið. Meðal dagskráratriða á þinginu er útiguðsþjónusta,
sem haldin verður á opnu svæði í Chicago, er taka mun mn
100000 manns.
Sennilegt er, að séra Bragi Friðriksson í Lundar, Man.,
Eanada, muni verða fulltrúi Islands á þinginu.
Eity Temple endurhyggt.
Margir kannast við hina frægu fríkirkju, City Temple í
London, sem eyðilögð var í loftárásum á stríðsárunum. Var
su kirkja þekktust fyrir hina frægu prédikara, er hún hafði
a að skipa, þá dr. Parker, dr. R. J. Campbell, dr. Norwood og
nú síðast dr. L. Weatherhead.
Nú á að endurbyggja kirkjuna í sama stíl og áður, hefir
Veríð safnað fé til byggingarinnar í nokkur ár og nú sem
stendur er dr. Weatherhead á ferð í Bandarikjunum að vinna
fyrir kirkjubyggingarmálið. — Dr. Weatherhead er afburða
Pfedikari, og City Temple á vini víða um heim.
^ihlían og vísindamennirnir.
1 Israel hefir Biblían orðið mjög þýðingarmikil fræðibók í