Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1955, Page 10

Kirkjuritið - 01.01.1955, Page 10
8 KIRKJURITIÐ Hjartahreinir — heilir, einlægir menn munu Guð sjá. Þá léttir til í þokunni, sem grúfir yfir hafinu. Þá vitum vér, að jafnan er bjart ofar skýjum, og að þessi heimur er Guðs heimur, sem hann elskar og sendi son sinn, til þess að hver, sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þá sjáum vér sólstafi, er birta oss Guðs ríki fram undan. Þá skiljum vér, að það er vantrú að örvænta um hag jarðar vorrar. Sú kemur tíð, að sumar rennur yfir djúpið í mætti og dýrð, sumar sátta og friðar. Fram í Jesú nafni. I bæn, trú og kærleika til Guðs og manna. Kom þú, drottinn Jesús. Geti eg krafti af guðdóms hreinum geisla þínum staðizt einum, sonur Guðs, ó, send mér hann. Það, sem vér megnum ekki, það getur þú. Efl veikan vilja vorn. Tak í óstyrka og fáimandi hönd vora. Fullkomna á oss og mannheimi öllum það verk, sem þú hefir hafið. Vér leggjum allt í þínar hendur, önd og líf. Meira getum vér ekki. Blessa oss, ættjörð vora, öll lönd og þjóðir. Hann var látinn heita Jesús — frelsari. Gleðilegt nýár í Jesú nafni. Ásmundur Guðmundsson.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.