Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1955, Page 36

Kirkjuritið - 01.01.1955, Page 36
Bréf frá málflutningsmanni, Það hefir komið fram, að nauðsyn væri að taka upp skriftir innan kirkjunnar og hefir það mál verið nokkuð rætt og m. a. í grein herra biskupsins í 1. hefti Kirkjuritsins 1954. í þessu sam- bandi hefir þess verið getið, að almenningur muni nú á dögum fyrst og fremst skýra læknum og þar næst prestum frá vand- ræðum sínum í því skyni, að segja einhverjum hug sinn allan og létta með því af sér fargi og svo væntanlega einnig að öðr- um þræði í þeim tilgangi, að þessir menn leysi úr þeim vand- ræðum, sem um er að ræða, eða bendi á leiðir til þess. Mér kom það nokkuð á óvart, að þegar um það er rætt, til hvaða manna, vandalausra, almenningur leitar, þegar um erfið- leika er að ræða, þá skuli lögfræðinganna og þá sérstaklega mál- flutningsmannanna vera hvergi getið. Nú er það svo, að lög snerta með einu eða öðru móti flestar mannlegar athafnir, og má því segja, að þeim, sem við slík efni fást, sé fátt mannlegt óviðkomandi. Af því leiðir aftur, að lögfræðingar, og þá ekki sízt praktíserandi lögfræðingar og dómarar, hljóti að kynnast aðstæðum fólks í blíðu og ekki síst í stríðu á mjög fjölbreyttan hátt. Praktiserandi lögfræðingar hafa það m. a. að atvinnu, að leiðbeina almenningi um það, sem að lögum lýtur og leysa úr einum og öðrum vanda. Nú er það margoft þannig, að sá vandi, sem er á höndum, verður ekki á beztan hátt leystur með því t. d. að leita til dómstóla eða einhverra annarra stjórnar- valda, heldur verður að leita annarra ráða, ef málalokin eiga að verða farsæl fyrir þann eða þá, sem í hlut eiga. Vandræði og raunir manna eru oftast jafn margvíslegar eins og mennirnir eru margir. Það er fágætt að hitta fyrir nákvæmlega sömu að- stæður. Lífið er óendanlega fjölbreytt. Einstaklingarnir eru hver öðrum ólíkir og búa fæstir við hið sama. Lausnarinnar á tilteknum vanda er oft að leita í persónunni sjálfri fremur en efnalegum aðstæðum hennar. Af því leiðir, að enginn praktiser- andi lögfræðingur kemst hjá því að kynna sér, oft og tíðum, sálarlíf þess, sem í hlut á, að nokkru marki, og verður það, með

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.