Kirkjuritið - 01.01.1955, Blaðsíða 25
Elzta íslenzk kirkja í Vesturheimi.
Eftir RICHARD BECK.
Sumarið 1953 átti íslenzka landnámið í Norður-Dakota
75 ára afmæli, og er þar um að ræða meginbyggðir íslendinga
í Pembina- og Cavalierhéröðum þar í ríkinu. Var þeirra merkis-
tímamóta í sögu þessa stærsta landnáms íslendinga í Bandaríkj-
unum minnzt með virðulegum og mjög f jölsóttum hátíðahöldum,
bæði með sérsökum hátíðarguðsþjónustum í öllum sjö kirkjum
hins fjölmenna byggðarlags, og einnig með fjölbreyttri og til-
komumikilli landnámshátíð, er tengdi með mörgum hætti sam-
an nútíð og fortíð, ekki sízt sögulega sýningin, sem brá upp
svipmiklum leiftrum úr sögu íslenzka landnámsins á þeim slóð-
um frá upphafi vega þess og fram til þessa dags.
Margs var einnig minnzt á þessum tímamótum hinnar blóm-
legu og söguríku byggðar. Þar höfðu íslenzkir landnemar háð
harða en sigursæla brautryðjendabaráttu, og i hópi þeirra frum-
herja, karla og kvenna, verið margir þeir, er hæst gnæfa í land-
uámssögu íslendinga vestan hafs og settu mestan og varanleg-
ustan svip á nýbyggðina og menningarbrag hennar. 1 þá ný-
lendu eiga og rætur að rekja ýmsar þær stofnanir og menn-
ingarstraumar, sem áhrifaríkastir hafa orðið í andlegu lífi
Islendinga vestan hafs, og úr þessum íslendingabyggðum hafa
Ég þakka prestunum, sem hingað hafa komið og gert þessa
uthöfn tilkomumeiri en ella. — Það er sannarlega nýjung hér
að sjá svona marga hempuklædda presta í hóp.
Ég þakka þjóðminjaverði fyrir komuna og öll þau afskipti,
sem hann hefir haft af málefnum kirkjunnar.
°g að allra síðustu árétta ég þá kveðju, sem prófastinum,
séra Eiríki Helgasyni, var flutt hér, og vænti þess, að hún verði
borin honum af þeim, er fara heim til hans.