Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1955, Síða 33

Kirkjuritið - 01.01.1955, Síða 33
HÚSVITJANIR 31 Fátt var til af bókum á heimilinu nema guðsorðabækur. Til sunnudagslestra voru notaðar til skiptis Péturspostilla og Helgapostilla, og stundum til tilbreytingar Miinsters- hugleiðingar, og til kvöldlestranna Péturs-hugvekjur. Auk þess, er ég nú hefi nefnt, var til Hallgrímskver og Sumar- gjöfin. En sú bók var bæði andlegs og veraldlegs efnis. Og auk þessara bóka auðvitað Biblían og Nýja testamentið. Að lestrinum loknum urðum við krakkarnir undir eins að fara að hátta, því að eftir það mátti enginn leika sér. En þá fylgdist líka mamma vel með okkur, því að ekkert okkar mátti sofna án þess að lesa bænimar, sem hún sjálf hafði kennt okkur. Hún gekk frá rúmi til rúms, lagði hendurnar yfir okkur og lét hvert einstakt barn lesa 2—3 vers eða bænir. Og oftast var endað á sama versinu, sem minnir, að prentað sé í Sumargjöfinni. En það er á þessa lund. Berðu nú, Jesús, bænina mína blessaðan fyrir föðurinn þinn. Legðu mér svo liðsemd þína, að líti hann á kveinstaf minn. Fyrir þitt heita hjartablóð heyrðu mig nú, elskan góð. Þér sé lofgjörð lögð og framin, lifandi Guð um aldir, amen. Á þessum árum voru húsvitjanir tíðkaðar. Ekki man ég þó, hvort þær voru úrfallalaust á hverjum vetri. En ég ætla hér að segja frá fyrstu húsvitjuninni, sem ég man eftir. Er mér hún minnisstæð vegna eins smávægilegs atviks, sem þá kom fyrir. Foreldrar mínir voru þá nýlega flutt úr Bárðardal að Hjalla í Reykjadal. Þá var einnig nýkominn ungur prestur að Einarsstöðum, en þar var kirkjusókn okkar. Var það séra Matthías Eggertsson. Enginn barnaskóli var þá til í dalnum. Elzti bróðir minn var þá fermdur, og veturinn áður en hann fermdist var tekinn kennari í tvær vikur til að búa hann undir ferminguna. Nutum við yngri bömin einnig nokkurs gagns af veru hans. Og nú var þessi elzti bróðir látinn segja okkur til í lestri, skrift og reikningi.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.