Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1955, Síða 47

Kirkjuritið - 01.01.1955, Síða 47
Fundur Kirkjuráðs. Kirkjuráð kom saman til fundar í Reykjavík dagana 1.—5. nóvember síðastliðinn undir forsæti biskups, en í því eiga sæti auk hans, séra Jón Þorvarðarson og séra Þorgrímur Sigurðs- s°n, kjörnir af prestum landsins, og Gizur Bergsteinsson hæsta- réttardómari og Gísli Sveinsson fv. sendiherra, kjörnir af hér- aðsfundum, og er Gísli varaforseti ráðsins. Ráðið ræddi að þessu sinni mörg mál varðandi kirkju og kristnihald. Má þar nefna meðal annars: Ráðið mælti með því, að ráðinn verði prestur til þess að gegna þjónustu í forföllum sóknarpresta og þar, sem brauð eru prestslaus um stundarsakir. Ráðið tjáði sig hlynnt því, að fenginn verði prestur til þess að annast sálgæzlustörf í Reykjavík í samvinnu við lækna, einkum meðal sjúkra manna, gamalmenna, fanga og þeir\a annarra, er þarfnast hugarstyrkingar og hollra ráða. Rætt var um nauðsyn á auknu samræmi varðandi helgisiði °g framkvæmd helgiathafna í kirkjum landsins. Ráðið taldi óviðunandi, að prestar og aðrir guðfræðingar hefðu ekki að lögum fullkomin kennsluréttindi í kristnum fræð- um í barna- og unglingaskólum landsins. Bæri að því að stefna, að guðfræðilærðir menn hefðu þessa kennslu með höndum í skólunum, þar sem því yrði við komið. Varðandi lög um leigunám prestssetursjarða, samþykkti kirkjuráðið svohljóðandi ályktun: Kirkjuráð ítrekar samþykkt sína á fundi 23. febrúar 1952 um þetta mál og felur biskupi að vinna að því við kirkjumála- ráðherra og alþingi, að lögum þessum verði breytt á þá lund, að því aðeins sé heimilað að skipta prestssetursjörð eða skerða, að fyrir liggi: Meðmæli nýbýlastjórnar. — Meðmæli hlutaðeigandi prests, sóknarnefndar og prófasts. — Samþykki skipulagsnefndar Prestssetra, í fjórða lagi samþykki biskups. Biskup las skýrslu Skálholtsnefndar og áætlanir um fram- kvæmdir í Skálholti. Urðu um hana nokkrar umræður, en engar ályktanir gjörðar.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.