Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1955, Page 13

Kirkjuritið - 01.01.1955, Page 13
TIL KIRKJUFUNDAR OG BISKUPSVÍGSLU 11 varð koma hans til þess, að kirkja íslands gerðist þátttakandi í Kirknasambandi Norðurlanda. Hann á nú heima í Sigtúnum og kennir heimsspeki við lýðháskólann. Aðrir sænskir stjórnarmenn eru Nils Karlström, dómprófast- ur í Skara og ritstjóri tímaritsins, sem Kirknasambandið gefur út, og Gunnar Westin, prófessor í kirkjusögu í Uppsölum; er hann Baptisti. Danskir stjórnarmenn eru K. E. Skydsgaard, prófessor við Hafnarháskóla, frægur fyrirlesari, og G. Sparring-Petersen, prestur í Kaupmannahöfn. Frá Finnlandi eru í stjórninni Almo Nikolainen, prófessor, og G. O. Rosenquist, biskup í Borgá, sem áður var prófessor í kennimannlegri guðfræði. Hann var vígður síðastliðinn hvíta- sunnudag. Norðmennirnir gátu ekki sinnt stjórnarstörfum að þessu sinni sökum námsdvalar í Ameríku. Þeir eru Ejnar Molland, prófessor, og Kristian Hansson skrifstofustjóri í kirkjumála- ráðuneytinu. Björkquist biskup las fyrst upphaf 21. kapítulans í Opinber- unarbókinni og bað bænar. Því næst setti hann fundinn og minntist Sigurgeirs biskups Sigurðssonar, sem hafði átt fyrst- ur íslendinga sæti í stjórn Sambandsins og verið nýkjörinn formaður þess, er hann lézt. Fór hann fögrum orðum um ástúð hans og eldmóð, og hlýddum við á þau standandi. Þá var tekið til fundarstarfa, og flutti framkvæmdastjóri Kirknasambandsins langa skýrslu um störf þess árið 1953: Undirbúning undir Evanstonþingið. Þátttöku í starfi Alkirkju- ráðsins og Lúterska heimssambandsins. Hjálp við bágstadda, einkum flóttamenn. Fundarhöld með Norður-Þjóðverjum um málefni kristindóms og kirkju. Önnur fundahöld og nefndar- störf. Næst fóru kosningar fram fyrir tímabilið til næsta stjórnar- fundar. Formaður Kirknasambandsins var ég kosinn. Varaformaður Björkquist. Formaður starfsnefndar Kristian Hansson. Eftir hádegi var fundurinn fluttur til heimilis þeirra Björk- quistshjónanna. En þau eiga heima á efstu hæð húss eins, sem stendur rétt hjá Stofnuninni, og var hún reist handa þeim.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.