Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1955, Qupperneq 17

Kirkjuritið - 01.01.1955, Qupperneq 17
TIL KIRKJUFUNDAR OG BISKUPSVlGSLU 15 er látizt höfðu síðastliðna viku, en klukkur ómuðu og hvöttu til bæna. Er þetta siður við hverja hámessu með Svíum. Meðan sálmur var sunginn eftir prédikun, gengum við til skrúðhúss, sem áttum að taka þátt í vígsluathöfninni. Skrýdd- umst við þar fullum skrúða og gengum síðan tveir og tveir inn kirkjugólfið, 26 alls, flestir biskupar, en lofsöngur fyllti kirkjuna. Þeir, sem voru í fararbroddi, báru bagal, biskups- kápu, biskupskross og mítur, sem ætluð voru Stokkhólmsbiskupi. Vígsluþegi kraup við altarisgráðurnar, og við skipuðum okkur á báðar hendur honum. Erkibiskup sté upp þrep að háaltarinu og flutti þaðan vígsluræðu sína út af Kól. 4, 2—3: ,,Verið stöð- ugir í bæninni og árvakrir í henni og þakkið; biðjið jafnframt einnig fyrir oss, að Guð opni oss dyr fyrir orðið, til að boða leyndardóm Krists.“ Hann mælti meðal annars á þessa leið: „Bænin er frumtónn hátíðargleði vorrar. Viðhafnarsiðir hennar mega ekki beina hugum vorum frá þessu eina, sem öllu skiptir. Bæn og yfirlagning handa eiga saman við biskups vígslu. Hendurnar, sem lagðar eru á höfuð honum, tákna sam- hengið í starfi kirkjunnar kynslóð eftir kynslóð. En bænin veitir þessari heilögu athöfn líf. Vér erum ekki komin hér saman til þess að horfa á sjaldgæfan sjónleik, heldur til þess að slá bænahring um þennan bróður vorn, sem nú tekst á hendur eitt af erfiðustu — eða erfiðasta hlutverkið, sem falið er nokkrum þjóni kirkju vorrar. Stifti þitt, prestar þínir og söfnuðir bjóða þig vissulega vel- kominn af öllu hjarta. Þú mátt vænta mikillar góðvildar og samúðar. En þú munt einnig finna opnar dyr fyrir orð þess boð- skapar, sem þú ert kallaður til að flytja. Því að um þetta er mest vert í biskupsstarfi, að vera þjónn orðsins og greiða því veg til mannshjartnanna. Svo mætti virðast sem dyrnar stæðu nú lítt opnar fyrir orðið, þar sem margir nema aldrei kall klukknanna og lítið er um kirkjuferðir. Víða um land ægir mönnum sífelldur vöxtur höfuðborgarinnar, og þeir draga það í efa, að Guðs orð finni þar opnar dyr. Og vissulega er marga hindrun að yfirstíga og marga hleypidóma að leiðrétta. En skyldum vér ekki mega vænta þess, að sá tími sé nú brátt á enda, er menn daufheyrast við orði Guðs? Er ekki að finna eftirvæntingu og þrá í hugum margra, sem áður hafa horft

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.