Kirkjuritið - 01.01.1955, Side 21
SÁLMUR
19
og eilífan sannleik greina:
Þótt syndgað vér höfum lífs á leið,
þú lætur oss miskunn reyna.
Eg sofna í Drottni sæll þess má,
að sonur Guðs náttvörð stendur.
Svo vakna eg mærum morgni á
og mínar sé heimalendur.
í fagnandi kærleik krýp eg þá
og kyssi hans stungnu hendur.
Vald. V. Snævarr þýddi.
Guðspjallssálmur 3. sd. e. páska skv. II. textaröð.
(Jóh. 14,1—11)
*
Aðalfundur Hins íslenzka Biblíufélags.
Aðalfundur Hins íslenzka Biblíufélags var haldinn í Dóm-
kfrkjunni 17. nóvember síðastliðinn.
Fundurinn hófst með því, að sunginn var sálmur nr. 425 og
forseti félagsins, dr. Ásmundur Guðmundsson, biskup, las Jes.
8—11 og bað bænar. Því næst setti hann fundinn. Minntist
hann fyrst fyrrverandi forseta félagsins, dr. Sigurgeirs Sigurðs-
sonar, og gat helztu atriða úr sögu félagsins í forsetatíð hans.
Þá minntist hann Hálfdanar prófasts Helgasonar. — Vottuðu
fundarmenn minningu þessara manna virðingu og þökk með
því að rísa úr sætum.
Þá gerði forseti grein fyrir störfum félagsins. Gat hann þess,
að ungfrú Ingibjörg Ólafsson hefði verið kjörin til þess að
vera fulltrúi Hins íslenzka Biblíufélags á afmælishátíð Hins
brezka og erlenda Biblíufélags á síðastliðnu sumri. Las hann
ýtarlega skýrslu frá henni um afmælishátíðina.