Kirkjuritið - 01.01.1955, Qupperneq 24
22
KIRKJURITIÐ
Nafn Drottins sætt fær bölið bætt.
Blessað sé það án enda.
Ég vík að þessu hér, vegna þess að mér virðist, þegar djúpt
er skoðað, að sú athöfn, sem hér hefir farið fram í dag, hafi
miðað að því að tengja saman þessa þrjá þætti islenzkrar
menningar.
Þjóðminjasafnið er merk stofnun. Þar má greina af áþreifan-
legum munum atvinnusögu þjóðarinnar, sögu um lífsbaráttu
fyrri kynslóða. Þeir menn, sem völdust til þess að ganga form-
lega frá stofnun lýðveldisins, létu það verða eitt af allra fyrstu
málum, er Alþingi afgreiddi, eftir að lýðveldið var stofnað, að
leggja fram fé til að reisa veglegt hús yfir Þjóðminjasafnið.
Það var ákveðið á fundi í sameinuðu þingi 20. júní 1944 —
ákveðið ágreiningslaust, eins og stofnun lýðveldisins. Þetta var
gert fyrir hönd þjóðarinnar með þeirri vitund, að lýðveldið
þarf að eiga sér rætur í íslenzkum jarðvegi, vitund um það, að
Rótarslitinn visnar vísir,
þó vökvist hlýrri morgundögg.
Hofskirkja er nú orðin hluti af Þjóðminjasafninu. Með því
sýna stjórnvöld landsins fyrir forgöngu og undir forystu þjóð-
minjavarðar, að þau gefa því gætur, að við höfum meðal okkar
menningarleg verðmæti, og gera ráðstafanir til þess, að slík
verðmæti skuli í heiðri höfð og að þeim skuli hlúð, þótt þau
séu hér í afskekktri sveit og fjarri höfuðstað landsins. í þessu
speglast ást til landsins.
Þessi ráðstöfun er gerð í trausti á fólkið, sem hér býr. Þessi
eign Þjóðminjasafnsins yrði ekki mikils virði, ef byggðin legð-
ist í eyði. Þetta er því jafnframt áminning og hvöt til okkar
um það að standa vörð um byggðina og þá menningarlegu
arfleifð, er hún geymir.
Og í dag hefir biskupinn yfir íslandi opnað að nýju til af-
nota helgidóm, sem hefir löngum verið íbúum þessarar sveitar
athvarf á helgustu stundum lífsins og þeim er kær.
Þegar þetta er athugað, er augljóst, að það er rétt, að við
höfum í dag ríka ástæðu til að fagna og þakka. Ég vil því að
lokum fyrir mitt leyti og fyrir hönd allra íbúa þessarar sveitar
bera fram þakkir.
Ég þakka biskupi fyrir komuna hingað.