Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1955, Page 44

Kirkjuritið - 01.01.1955, Page 44
42 KIRKJURITIÐ 3. Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða telur endurreisn Skál- holts aðkallandi nauðsyn og verði þegar hafizt handa um bygg- ingu kirkju, sem hæfi minningu og sögu staðarins og fram- tíðar hlutverki hans sem biskups- og skólaseturs. Stjórn Prestafélagsins skipa nú: Séra Sigurður Kristjánsson, ísafirði, formaður, séra Jón Ólafsson, prófastur í Holti, ritari, og séra Einar Sturlaugsson, prófastur á Patreksfirði, gjald- keri. Að loknum fundi sátu fundarmenn kaffiboð sóknarnefndar Bildudalssóknar, en að því loknu var Bíldudalur kvaddur, og hélt hver heim til sín. ísafirði, 15. nóvember 1954. Sig. Kristjánsson. * Eflifi sunnudagaskólana. Séra Jón ísfeld á Bíldudal skrifar: „Frá starfi mínu er svipað að segja og áður. Ég er búinn að setja sunnudagaskólann. Konan mín spilar á orgelið fyrir okkur. Við syngjum ýmsa barnasálma með fallegum lögum. Lögin tínum við saman úr ýmsum áttum, en stundum fer svo, að ég verð að taka mig til og „yrkja“ vers við lögin, sem eingöngu finnast með erlendum textum. Skólinn er í tveimur deildum, eldri og yngri börn. í hvert skipti koma fram tvö börn í hvorri deild og lesa upp eða velja söng. Þetta reynist mjög vel, og ekki skrópa þau frá þessum skyldustörfum. Það er yndislegt að sjá sum þau 6 og 7 ára ganga fram og lesa sögu eða sálm, eldrjóð og augun blika. Og heyra þau fara með marg-æfð verkefnin! Það er í flestum tilfellum auðheyrt, að þau hafa verið æfð heima. Þannig tengjast „þau heima“ sunnudagaskól- anum."

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.