Kirkjuritið - 01.06.1956, Síða 21
Ávarp til íslenzkra presta
«
Kæru félagsbræður.
í þessu hefti Kirkjuritsins er skýrt frá dagskrá hins norræna
prestafundar, er ákveðinn hefir verið hér í Reykjavík dagana
2.-6. ágúst. Um leið og ég bið yður að gera svo vel að tilkynna
vasntanlega þátttöku yðar við fyrstu hentugleika, vil ég levfa
mér að taka fram nokkur atriði, er fundinn varða, enda þótt
eg \'iti, að mörgum séu þau kunnug.
1. Fundartíminn. — Ýmsir prestar, einkum sveitaprestar, hafa
kvartað yfir því, að fundurinn skuli haldinn á þessum tíma. Stutt
sé liðið frá Skálholtshátíðinni, dýrt að taka sér fyrir hendur aðra
ferð til Reykjavíkur, og loks eigi vmsir örðugt með að fara að
heiman um há-sláttinn. Allt eru þetta frambærilegar aðfinnsl-
Ur» og tel ég mér því skylt að skýra frá því, hvernig í þessu
hggur. Upphaflega vakti það fyrir öllum, sem að þessu standa,
að fundurinn yrði um sama leyti og Skálholtshátíðin. Þegar akveð-
hafði verið, hvenær hún færi fram, tilkynnti prestafélagsstjorn-
m það þegar í stað til hinna erlendu prestafélaga, en því mið-
Ur reyndist þá orðið of seint fyrir hin erlendu prestafelög að
tryggja sér sameiginlegan skipakost til íslands á þessum tíma.
í julí-mánuði í fyrra var samt sem áður ákveðið að standa við
þú aætlun að liafa fundinn í júlí-byrjun. En þegar til kom, reynd-
ist það enn ókleyft að fá skip til fararinnar, svo að prestafélög-
111 í Danmörku, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð báru sameiginlega
ham þá ósk, að fundinum yrði frestað til 2.-6. ágúst. Var hér um
tvo hosti að velja, og hvorugur góður. Yrði fundurinn í byrjun júlí,
' ar sýnt, að þátttakan erlendis frá yrði sama sem engin. Presta-
félagsstjórnin ákvað því að taka síðari kostinn, enda þótt vitað
Vferi, að slíkt væri miklum örðugleikum bundið fyrir innlenda
Presta. Ég vona, að þér, kæru félagsbræður, fallizt á, að úr því