Kirkjuritið - 01.11.1958, Qupperneq 31
KIRKJURITIÐ
413
væri amazt við nokkurs konar útgáfu — og að skáldlistin
væri sérstaklega hafin yfir allar hömlur —, hafa nú ótil-
knúðir látið nokkuð verulega frá sér heyra, þó til séu heiðar-
legar undantekningar.
En aðrir þegja enn þunnu hljóði. Hvað veldur?
Merk bókaútgáfa.
í tilefni af ofanskráðu langar mig að benda mönnum á
bækur, sem nýkomnar eru hér í bókaverzlanir. Þetta er þýzk-
ur bókaflokkur, sem kallast Bilcher des Wissens. tJtgefandi er
Fischer Bucherei, Frankfurt am Main. Þarna eru úrvalsrit
bæði um trú og heimspeki, ævisögur og fleira, mjög snyrti-
lega útgefin og kosta tæpar fimmtán krónur. Rowolt-útgáfan
þýzka gefur líka út ágæt rit um sömu efni fyrir líkt verð.
Prestar og aðrir þeir, sem þýzku lesa, ættu að kynna sér þessa
fjársjóðu, sem öllum er hægur vandi að afla sér.
Gunnar Árnason.
Sért }>ú til, Guð, }>á tak })ú við mér eins og ég stend nú á þessari
stundu. Gef mér tákn þess. Ég vil gefast þér algjörlega. Sért þú til, þá
svara mér. Lát mig finna til nærveru þinnar, tala til sálar minnar, svara
mér. Ég skal hlýðnast þér, já, fara á heimsenda, ef þér býður svo við
að horfa, fara hvert, sem þú sendir mig. Sért þú til, þá veit mér þá vissu.
Þér gef ég mig, og allt, sem í mínu valdi stendur. Lát mig umbreytast
nú á þessari stundu, lát mig fæðast að nýju, og lát mig helgast þér. —
Mathilda Wrede.
☆
Guð situr hátt, en sér lágt. -— Orfitak.