Kirkjuritið - 01.01.1969, Page 24
18
KI li KJ U lt 1TI 0
Kirkjuþing ályktar aði skora á Alþingi að afgreiða á þingi því,
er nú stendur yfir, frumvarp til laga um veitingu prestakalla
og skipan prestakalla og Kristnisjóðs, er áður liafa verið lögð
fyrir Alþingi.
Málinu var vísað til allsherjarnefndar. Nefndin mælti með
tillögunni með þeirri breytingu, að uppliaf hennar væri svo:
„Kirkjuþing ályktar að skora á ríkisstjórn og Aljtingi. ..“
Flutningsmaður féllst fyrir sitt leyti á Jtessa breytingu og
var tillagan jjannig samþykkt.
4. 7/iál
Tillaga til þingsályktunar
Flutningsmaður sr. Gunnar Árnason
Kirkjuþing 1968 telur æskilegt að kirkjuráð gangist í vetur
fyrir fræðslu- og umræðuviku um kirkjumál í líku formi og
Trúmálavika Stúdentafélags Reykjavíkur 13.—18. marz 1922.
Meðal viðfangsefna væri viðhorf æskunnar til kirkju og kristni,
og samband ríkis og kirkju.
Málinu vísað til allsherjamefndar, er lagði til að tillagan
yrði svohljóðandi:
Kirkjuþing telur æskilegt, að kirkjuráð gangist sem fyrst
fyrir skipulögðu fræðslustarfi og umræðum um kirkjumál á
opinherum vettvangi.
Ályktun þessi var samþykkt.
5. mál
Tillaga til þingsályktunar
Flutningsmaður sr. Þorbergur Kristjánsson
Kirkjuþing ályktar að beina Jieirri áskorun til kirkjumálaráð-
lierra, að hann beiti sér fyrir því, að þéttbýlisprestar eigi rétt
til embættisbústaða liér eftir sem hingað til.
Vísað til löggjafarnefndar, er mælti með tillögunni óbreyttri.
Var hún samþykkt samhljóða.