Kirkjuritið - 01.01.1969, Side 26
20
KIKKJUKITID
Vísað til allsherjarnefndar. Nefndin lagði til, að tillagan
yrði svoldjóðandi:
Kirkjuþing lialdið 1968, beinir þeim eindregnu tilmælum
til þjónandi presta þjóðkirkjunnar, sóknarnefnda og safnaðar-
fulltrúa, að helgiliald kirkjunnar verði rækt eins ýtarlega og
lög og tilskipanir þar að lútandi mæla fyrir um, enda sjái
kirkjustjórn um, að viðkomandi aðilar fái í liendur fyrirmæli
um starfssvið sitt.
Jafnframt treystir Kirkjuþing |>ví, að prófastar í umboði
biskups sjái til, að helgihaldið sé virt og rækt og vandi um, ef
út af er brugðið.
Við 2. umræðu komu fram breytingartillögur um orðalag:
I stað orðsins „helgihald“ komi „guðsþjónustuhald“, og niður-
lag tillögunnar hljóði svo: „ .. . að guðsþjónustur séu ræktar,
og vandi um, ef út af er brugðið“.
Þessar breytingartillögur voru samþykktar og ályktunin
síðan samkvæmt tillögu allsherjarnefndar.
8. mál
Tillaga til þingsályktnnar
Flutningsmaður sr. Gunnar Árnason
Kirkjuþing 1968 telur æskilegt að biskup íslands semji og
sendi prestum nýtt erindisbréf um verkefni þeirra vegna gjör-
breyttra þjóðfélagshátta.
Vísað til allshrejarnefndar. Álit hennar var svohljóðandi:
Kirkjuþing telur brýna nauðsyn á, að næsta prestastefna
taki til rækilegrar athugunar og umræðu starfsgrundvöll og
verksvið presta þjóðkirkjunnar vegna gjörbreyttra þjóðfélags-
hátta.
Þessi tillaga var samþykkt.