Kirkjuritið - 01.01.1969, Page 38
32
KIRKJURITIÐ
Ef kirkjan verður stirðnuð stofnun en ekki trúboðsfélag eins
og í öndverðu, liefur hún einangrað sig og óhlýðnast boðuni
Krists, að dórni kardínálans. Honum finnst upplaunarástand
æskunnar og sinnuleysið um andleg mál næsta ískyggilegt
ásamt mörgu fleiru. Hann vill því undirstrika óánægju sína
með ríkjandi ástand innan kirkjunnar og benda á framtíðar-
leið með því að gerast trúboði meðal liinna bágstöddu. Hann
vonar að þeir, sem skilja ekki röksemdir hans, skilji þjónustu
lians.
„Kardínálatignin á ekki að varna neinum að gera góðverk.“
Á undanförnum árum liefur Léger komið á mörgum umbót-
urn innan stiptis síns. Hvatt leikmenn til að leysa frá skjóð-
unni um skoðanir sínar á kirkjunni og gerast virkari þátttak-
endur í söfnuðunum en þeir almennt eru. Hann befur líka
stutt kröftuglega stjórnmálalegt frjálslyndi og þjóðfélagslegar
umbætur.
Hann befur unnið sér mikla liylli meðal menntamanna og
alniénnings, en líka bakað sér beizka andúð ýmissa aftiirlialds-
seggja. Hin fyrrgreinda ákvörðun liefur nú bafið liann til enn
meiri vegs en áður.
Ingemar Glemme
hefur verið ráðinn sem prestur að sænska sjónvarpinu. Hann
er maður á bezta aldri og einn af kunnustu klerkum Svía. Að
loknu guðfræðiprófi var liann í sjö ár starfsmaður við Vdr
Kirka og gat sér þar gott orð fyrir víðsýni og áhuga og rit-
færni. Undanfarið hefur hann verið prestur í Spanga.
Samstarfsinaður Ingemars við sjónvarpið er séra Gunnar
Dalimén. Hafa þeir margt í liyggju varðandi framtíðina.
M. a. kveðst Ingimar Glemme hafa áhuga á eftirtöldu:
— Að gera grein fyrir því livaða álirif ákveðin trúarreynsla
bafi á mannlífið.
— Taka upp vitnisburð vakningarmanna, þ. e. a. s. fá fólk
til að skýra frá ávöxtum trúar sinnar.
Stofna til nýs viðræðuforms milli nafnlausra einstaklinga.
— Lýsa áhrifamönnum á trúmálasviðinu.
— Skýra frá staðreyndum um sálarlífið, með dæmum í orði