Kirkjuritið - 01.01.1969, Qupperneq 40
34
KlliKJUKITIÐ
láta slíkar auðlindir sem jarðhitinn er að miklu leyli ónotaðar
á þessum tímum, þegar allir barma sér og lirópa í einum kór,
að nú velti mest á því, að húa að sínu, en spara erlendan gjald-
eyri og draga úr fjárflutningi út úr landinu.
Þetta er svo mikið og aðkallandi þjóðþrifamál að ég get ekki
um það þagað. Enda varða hagsmunamál og velferð almenn-
ings sannarlega kirkjuna.
Hornsteinn heilbrig&ar menningar
Eftirfarandi ummæli Dwight D. Eisenhovers eru tekin úr
grein í Readers Digest:
„Ég vil að lokum lýsa yfir þeirri bjargföstu sannfæringu
minni, að liver sem ríkjum ræður í Hvíta liúsinu, livort liann
er íhaldssamur, frjálslyndur, eða þar mitt á milli, liafi sér-
staka skyldu við þjóðina. Forseti Bandaríkjanna á augljós-
lega og óbifanlega að fylgja því fram, sem rétt er og lieiðar-
legt, hvort lieldur í stjórn, á fjármálasviðinu eða í borgara-
legu h'fi. Því að heiðarleiki er liornsteinn heilbrigðrar menn-
ingar. Siðlaus þjóð býður heim sínu eigin liruni.“
Engin kirkjusaga
er fáanleg á íslenzku, sem hentar til kennslu í unglinga- eða
æðri skólum síðan Kirkjusöguágrip V. V. Snævarrs þraut á
markaðinum. Þetta er livorki vanzalaust né verjandi. Sannast
sagt er unga fólkið næstum ótrúlega fáfrótt hæði um Ritning-
una og sögu kirkju og kristni liérlendis og erlendis.
Sumuni kann að finnast það skipta litlu máli. En ekki
neinum sem liafa áliuga á að kristin liugsunarliáttur og líferni
blómgist betur í landinu. Og því verður ekki neitað að kirkjan
liefur fram að þessu komið svo mikið við sögu þjóðarinnar, að
ekki sæmir söguþjóð að leggja þann ]iátt á hilluna samtímis
því að fræðslan er aukin á öllum öðrum sviðum.