Kirkjuritið - 20.07.1969, Síða 10
296
KIRKJDRITIÐ
Lausn frá embœtti.
Tveir prestar hafa að eigin ósk fengið lausn frá embætti:
1. Sr. Þórarinn Þórarinsson, Vatnsendaprestakalli, S.-Þing-i
fékk lausn frá 1. nóvember 1968. Hann lauk guðfræðiprófi
vorið 1960 og vígðist ári síðar til Vatnsendaprestakalls, þar
sem liann var settur frá 1. júlí, en skipaður sóknarprestur í þvJ
kalli frá 1. des. 1962.
2. Sr. Sigurður K. G. Sigurðsson, Hveragerðisprestakalli?
Árn., fékk lausn frá 1. des. 1968. Hann lauk guðfræðiprófi í
janú^av 1964, var skipaður sóknarprestur í Hveragerðispresta-
kalli frá 15. október s. á.
Vér sendum þessum prestum, sem nú liafa liorfið að öðrum
störfum, bróðurlega kveðju og biðjum þeim blesunar um ó-
komin ár.
Sr. Sigurður Stefánsson, vígslubiskup í Hólastifti forna,
liefur sótt um lausn frá vígslubiskupsembætti og er hún veitt
frá 1. ágúst n. k. að telja. Hann var skipaður vígslubiskup fra
1. júlí 1959. Það er oss öllum kunnugt, að bann liefur átt við
langvarandi og þungbæra vanheilsu að stríða og því hefw
kirkjan ekki mátt njóta hæfileika hans sem skyldi bin síðari
ár. Vér sendum lionum kveðju og blessunaróskir og vott-
um lionum einlægt bróðurþel og þakkir.
Nýir prestar.
Fimm guðfræðikandidatar liafa tekið prestsvígslu á árinu-
1. Tómas Sveinsson var vígður 30. júní 1968, settur sóknar-
prestur í Norðfjarðarprestakalli, S.-Múl., frá 1. júlí.
Sr. Tómas er fæddur í Keflavík 18. ág. 1943, sonur hjónanna
Jónasínu Tómasdóttur og Sveins Jónssonar, verkstjóra. Haru1
ia*ak stúdentsprófi 1963 og embættisprófi í guðfræði vorið
1968. Hann er ókvæntur.
2. Þórhallur Höskuldsson var vígður 17. nóvember, skipaður
sóknarprestur í Möðruvallaklaustursprestakalb, Eyj. frá 1-
sama mán.
Sr. Þórliallur er fæddur að Skriðu í Hörgárdal 16. nóv-
1942, sonur bjónanna Bjargar Steindórsdóttur og Höskuldar
Magnússonar. Hann lauk stúdentsprófi 1962 og embættisprófi
í guðfræði haustið 1968. Hann er kvæntur Þóru SteinuniU
Gísladóttur frá Siglufirði.