Kirkjuritið


Kirkjuritið - 20.07.1969, Blaðsíða 50

Kirkjuritið - 20.07.1969, Blaðsíða 50
KIItKJUItlTIÐ 336 Á fundinum var cand. tlieol. Ásgeiri Ásgeirssyni, fyrrv. forseta Islands, aflient skrautritað heiðurskjal, í tilefni þess, að liann var útnefndur heiðursfélagi Prestafélags Islands að Bessastöðum hinn 22. júní 1968. Um kvöldið komu prestar saman til kaffidrykkju nieð konum sínum í Miðbæ, salarkynnum Hermanns Ragnars við Háaleitisbraut. INNLENDAR FRÉTTlR Séra Sveinn Ögmundsson prófastur í Þykkvabæ lætur af embætti 15. sept- ember næstkomandi. Hann er nú 72 ára. Séra Pétur Sigurgeirsson á Akureyri hefur verið kosinn vígslubiskup Hóla' biskupsdæmis í stað séra Sigurðar Stefánssonar, sem látið hefur af embætt1 sakir langvarandi vanheilsu. Gefinn skírnarfontur. ■— Sunnudaginn 13. júlí s. 1. vígði séra Gísli Bry11' jólfsson, fyrrverandi prófastur, við fjölmenna messu, nýjan skírnarfont 1 Skeiðflatarkirkju í V.-Skaftafellsprófastsdæmi. Fonturinn er gefinn til minningar um hjónin Arnlaugu Einarsdóttur og Pálma Fiimsson í ÁIfta' gróf í Mýrdal, af þrem eftirlifandi börnum þeirra og öðrum afkomendum- Hann er af sérkennilegri gerð. Smíðaður af sonum Jörundar Gestssonar, breppstjóra á Ilellu í Steingrímsfirði. Hann er mikill hagleiksmaður og hefur teiknað og skorið út lielgimyndirnar, sem prýða slólinn. KIRKJURITIÐ 35. árg. — 7. hefti — júlí 1969 Tímarit gefið út af Prestafélagi islands. Kemur út 10 sinnum á ári. Verð kr. 200^ Ritstjóri: Gunnar Árnason. Ritnefnd: Bjarni SigurSsson. Pétur Sigurgeirsson, Sigurður Kristjánsson. . AfgreiSslu annast Ragnhildur ísaksdóttir, Hagamel Sími 17601. Prentsmiðja Jóns Helgasonar.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.