Kirkjuritið - 20.07.1969, Blaðsíða 44
330
KIRKJURITIÐ
hafi verið liræðileg blindni og hörmulegt glappaskot. og
ekkert nema skömmina upp úr því að hafa.
En okkur ferst ekki að gerast dómarar þessara óhappa*
manna. Við gætum ekki svo vel verðmætanna, né vökum svo a
verðinum, að sumt fari ekki í súginn, sem ekki verður endur-
heimt. Aldrei liefur sannazt betur en nii að flest er falt fyrir
peninga, og ekki liorft í margs konar eyðileggingu, ef einhver
von er um stundargróða.
Miklar umræður og ráðagerðir liafa verið um það undan-
farið að auka Laxárvirkjun með því að liækka í Laxá og grípa
einnig til annarra aðgerða, sem kynnu að liafa ófyrirsjáanleg
áhrif á Mývatn. Þetta mundi leggja Laxárdal í eyði, sökkva
Laxárhólmum utan við Helluvað og ef til vill spilla Mývatni á
þann veg að fækkaði silungi og fuglum.
Nauðsyn þessa getur þó ekki verið ýkja mikil. Næg orka I il
geysistórra virkjana skammt undan, hæði í Norður-sýslunni og
austur á Héraði.
Og liver veit, nema kjarnorka leysi rafmagnið fyrr en varir
af hólmi?
Verði Mývatnssveit — perlu landsins — ekki þyrmt, sannast
að það herindarverk verður síðar talið meðal þeirra verstu.
Eitt af þeim, sem engir vildu unnið liafa, og ekki verður fyrir-
gefið.
Þótt kannske sé aðeins um að ræða ráðagerðir og áætlanir
slíkra liluta, er það svo ægileg speglun efnis- og auðhyggju nú-
tímans, að hún ætti að þykja blöskranleg.
Þjóðin getur ekki verið svo heillum liorfin að önnur eins
óhappaverk eigi sér stað.
Ekki skyldi dæma menn eftir skoð'unum þeirra, heldur Jiví hvaða áhrif
skoðanir þeirra hafa á þá sjálfa. — Georg Christoph Lichtenberg
Enginn fugl flýgur of hált, ef hann herst á eigin vængjum. —
WiUiam Blake
Vonin er góður morgunverður en lélegur miðdegisverður. — Francis Bacon