Kirkjuritið - 20.07.1969, Page 16
KIRKJURITIÐ
302
liver á sínum slað forgöngumenn, að jafnaði formenn söín-
unarnefnda. Árangurinn af þessari landssöfnun, sem lauk a
páskum, varð mikill. Alls söfnuðust rúmar 9 millj. króna og
eru þá meðtaldar 12 smálestir skreiðar, sem gefnar voru. Mun
engin fjársöfnun liér á landi hafa notið eins almennrar þátt-
töku og stúðnings. Hér eru ekki fólgnar neinar stórgjafit
sterkra fyrirtækja, það var liin almenna þátttaka fjöldans, sein
árangurinn gaf. Öilu þessu fé var varið til skreiðarkaupa, þVI
ríkisstjórnin tók að sér að greiða óhjákvæmilegan kostnað af
söfnunarstarfinu. Þessi íslenzku matvæli eru nú komin í höfn
í Sao Toiné, en það sein vantaði á til þess að ferma skip að
fullu með íslenzkri skreið keyptu Norðurlandakirkjurnar her.
Viðhrögð þjóðarinnar og midirtektir í þessu sambandi, eru
þakkar verðar og það er einnig ánægjulegt, að íslenzka kirkj-
an gat látið nokkuð til sín taka í þessu ináli, sem bræður vorir
í öðrum löndum liafa haft svo giftursamleg afskipti af. En
ekki skulum vér miklast af framlagi voru. Það magn skreiðar,
sem unnt var að kaupa fyrir þetta söfnunarfé, er ekki miklu
meira en magn þeirra matvæla og nauðsynja, sem loftbru
kirkjunnar liefur skilað til Biafra á sólarhring til jafnaðar
mánuðum saman. Þessi staðreynd gefur liugmynd um, hve
stórvaxið þetta lijálparstarf liefur verið.
Flughjálp hf.
Þeim aðilum, sem liafa getað lyft þvílíku Grettistaki, liefur
því ekki vaxið það mjög í augum að stofna lítið flugfélag til
þess að kirkjurnar gætu verið sjálfum sér nógar um loftflutu-
inga til Iiungursvæðanna í Nígeríu og í öðrum sambærileguDt
aðstæðum. Félagið Flughjálp lif. (Aid by Air) var stofnað hér
í Reykjavík föstudaginn 18. apríl 1969, en fyrsti fundur stjórn-
ar og framkvæmdanefndar félagsins var í Kaupmannahöfn
5. maí og sat ég þann fund, ásamt mínum íslenzku meðstjórn-
armönntun, þeim Kristjáni Guðlaugssyni og Jóliannesi Einars-
syni. Varamaður í stjórn er Páll Kolka, læknir.
Eins og kunnugt er af fréttum er fél,ag þelta stofnað nieð
litlu hlutafé, 100,000 kr., og er íslenzka kirkjan skrifuð fyrir
35 þús. kr. Fimm einstaklingar íslenzkir eiga sinn þúsund
króna lilut hver, en Loftleiðir lif. eiga 15 þús. kr. lilut. Af-