Kirkjuritið


Kirkjuritið - 20.07.1969, Side 24

Kirkjuritið - 20.07.1969, Side 24
KIRKJURITIÐ 310 hún léti þrjú hundruð ára ártíð sr. Hallgríms líða svo, að þvi verði ekki að fullu lokið. Minnumst í því sambandi, að aðeins fimm ár eru til stefnu. Lokaatriðið er eftir. — Prestastefna Islands 1969 lieitir því á stjórn ríkis og kirkju svo og á alla söfnuði landsins að sýna minningu sálmaskáldsins góða þann verðugan sóma, að því marki verði náð. Megi íslenzka þjóðm bera gæfu til þess að svo megi verða. Samþykkt var að senda Sambandi íslenzkra kristniboðsfél- aga þessa kveðju: Prestastefna Islands þakkar fjörutíu ára starf Sambands ís* lenzkra Kristniboðsfélaga og biður kristniboðinu blessunar Drottins. Prestastefnunni barst bréf frá Æskulýðssambandi Islands svo hljóðandi: „Sameiginlegur fundur framkvæmdastjórna Herferðar gegn Hungri og Æskulýðssambands Islands haldinn þriðjudaginn 24. júní þakkar biskupi lierra Sigurbirni Einarssyni umniæh hans við setningu prestastefnunnar og stuðning lians við bar- áttu ungs fólks fyrir lierferð gegn hungri. Yið sendum Prestastefnu Islands óskir okkar um gifturíkt starf og æskjum góðrar samvinnu í starfinu að hinu sameigin- lega markmiði: að bægja bungrinu frá dyrum binna sveltandi meðbræðra okkar á jörðinni. V irðingarfyllst, f. li. Herferðar gegn hungri f. h. Æskulýðssambands Islands Sigurður GuSmundsson (sign.) Ólafur Einarsson (sign.) Eg læt mér lynda það, sem á dagana drífur, því að eg trúi því, að Guð viti betur hvað mér hentar en eg sjálfur. — Epitektos Það er auðveldara að skrifa heimspekirit í tíu bindum, en að framfylgí® einni meginreglu í verki. — Leo Tolstoj Lítill lykill getur dugað til að ljúka upp stórri hurð. — Tyrkneskt orStak

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.