Kirkjuritið - 20.07.1969, Blaðsíða 26
312
KIRKJURITIÐ
En Nikulás Bucli var beykir á Húsavík, sennilega af norskuni
ættum. Hann kvæntist Karen Björnsdóttur Halldórssonar bisk-
ups á Hólum. Eru ýmsir merkir menn iit af þeim komnir svo
sem Steingrímur Steinþórsson búnaðarmálastjóri og ráðlierra.
Yar Guðrún fjórði ættliður frá þeim. Er sagt um Nikulás
Bucb, að liann hafi verið mikill dugnaðarmaður og hraust-
menni en jafnframt stórbrotinn í skapgerð. Mun að minnsta
kosti sumt af afkomendum hans bafa erft þessi ættareinkenni.
Og líklega mun Guðrún Oddný bafa verið í þeirra liópi. Hún
var afburða dugleg og kjarkmikil, en jafnframt nokkuð skap-
stór. Það kom nú algerlega í hennar hlut uppeldi föðurlausa
drengsins. Og það blutverk rækti liún með frábærri alúð,
fórnfýsi og kærleika. Hún var í eðli sínu sérstaklega barngóð
og að sjálfsögðu varð sonur liennar, sem nú var að öllu leyti
liennar forsjá falinn, augasteinn hennar og eftirlæti. Sparaði
hún ekkert til uppeldis bans, vann sjálf baki brotnu og gekk
ýmislegs á mis til þess að framtíð lians yrði sem bezt tryggð.
Voru þau mæðginin mest á Akureyri eða þar í grennd á þess-
um uppvaxtarárum bans. Gekk séra Stanley í gagnfræðaskól-
ann á Akureyri og lauk þaðan prófi 1912. Var liann síðan við
barnakennslu á Akureyri liinn næsta vetur. Haustið 1913 hélt
liann svo til Reykjavíkur og settist í fjórða bekk menntaskól-
ans og lauk stúdentsprófi 27. júní 1916. Þá um haustið fór
hann í guðfræðideild liáskólans og lauk þaðan prófi með góð-
um vitnisburði 13. febr. 1920. Hafði móðir lians fylgt honum
eftir á námsbrautinni, haldið heimili fyrir liann, stutt hann
fjárliagslega með vinnu sinni og verið honum ómetanlegur
styrkur með dugnaði sínum, atorku og fórnarlund. Séra Stan-
ley skildi líka vel hennar mikla frainlag honum til banda, ást-
ríki hennar og fórnfýsi og mat það allt að verðleikum. Sýna
þau orð, er liann setti á leiði hennar í Breiðabólsstaðarkirkju-
garði ljóslega hug lians til liennar, en þessi orð bljóða svo:
„Móðir, sem fórnaði sér fyrir barn sitt“.
Vígður var liann til Barðsprestakalls í Fljótum 27. júní 1920
og skipaður í embættið næsta vor. Var bann þar prestur i
ellefu ár eða til vors 1931 en ]»á var honum veittur 9. mai
Breiðabólsstaður í Vesturhópi.
Fyrstu prestskaparárin á Barði var móðir bans ráðskona bja
honum, en 18. nóv. 1928 kvæntist séra Stanley Guðrúnu Ólafs-