Kirkjuritið - 01.06.1973, Blaðsíða 16
Lítiö eitt um Staö í Grindavík
og fáeina presta
Staðarkirkju og prests er fyrst getið í Vilchinsmáldaga árið 1 397. Orm-
ur hét hann, fyrstur heimilispresta, er varðveitti kirkju og ábyrgðist
kirkjufé. Staðarkirkja átti árnaðarmenn marga, því að hún var með
Guði vígð sœlli Maríu, Jóni postula, Stefáni (frumvotti) Ólafi kóngi,
Blasíusi biskupi, Þorláki biskupi og heilagri Katrinu meyju, fjórum
rióttum eftir allraheilagra messu (1. nóv.).
Staðarkirkja hefir sjálfsagt ekki verið talin sérlega ríkulega búin.
Vilchin biskup í Skálholti nefnir í máldaga sínum, að Staðarkirkja eigi
innan sig þrjár klukkur og bjöllur tvcer, þrjá krossa, og er einn þeirra
af eiri, kaleik og kertastikur tvœr, tvö altarisklœði og tvœr altarisblœj-
ur, tvcer kantarakápur og slopp. Maríuskrift (mynd), tjöld umhverfis
sig, góð messuklœði með hökli af pelli, glóðarker og tlðabcekur árið
um kring ásamt Dominicale og Commune de sanctis (þ. e. bœkur með
messutextum fyrir sunnudaga og messudaga dýrlinga).
Þótt ekki sé þetta langur listi miðað við margar aðrar kirkjur á þess-
um tlma, þá er hér talið flest hið nauðsynlegasta. Síðar hafa önnur
registur annarra biskupa rituð verið, og eitthvað annað þar upp talið
I eigu Staðarkirkju, ekki alltaf jafnmikið. Það hefir farið eftir öldum
og hcetti, efnum presta og safnaðar.
Líklegt er, að Staðarkirkja hafi alla tíð verið gerð af torfi og grjóti
allt til ársins 1836. Þá er reist timburkirkja, en sjá'lfsagt af vanefnum,
þrátt fyrir töluverðan styrk sóknarmanna, að þess tíma hœtti, enda
stóð hún skamma hríð. Hinn merkilegi prestur, séra Þorvaldur Böðv-
arsson, sem kom að Stað árið 1850, lét reisa nýja timburkirkju, ramm-
byggilega með tvöföldu timburþaki og staðgóðum grunnmúr. Hrósar
biskup honum fyrir kirkjusmlðina og segir hann eiga ,,mestu þakkir
fyrir". Síðastur presta á Stað var séra Brynjólfur Magnússon. Hann
flutti frá Stað I Járngerðarstaðahverfið árið 1929. Staðarkirkja hafði
110