Muninn - 01.05.1986, Blaðsíða 25
Prefab Sprout
Undirritaður hefur ekki
hlustað á hljómsveitina Prefab
Sprout lengi, en nógu lengi til
þess að setja nokkur orð um
hana á blað með sæmilegri sam-
visku.
Tónlist Prefab Sprout krefst
þess að maður hlusti á hana af
athygli. Sennilega kitla fæst
lögin viðkvæmar danstaugar
Duran Duran-ista eða annarra
slikra (a.m.k ekki í fyrstu
tilraun).
Forsprakki hljómsveitarinnar
er maður að nafni Paddy McAloon
hann leikur á gítar, semur öll
lög og alla texta. Bróðir hans
Martin sér um bassaleik og
Wendy Smith lifgar upp á tón-
listina með tærri og fallegri
bakrödd. Trommuleikari var í
fyrstu Graham Lant en Neil
Conti er nú yfirlýstur trymbill
sveitarinnar.
Textar Paddy's endurspegla
menntaða lifsafstöðu hans, eru
fullir af myndlíkingum og taka
á öllu sem við kemur mannlegri
vidd. Um texta sina sagði hann
i viðtali: "Ég sem ekki póli-
tiska texta i þeirri merkingu
sem iðulega er lögð i orðið
pólitik. En með þvi að skir-
skota til lifsins sjálfs og
tilfinningarófs mannanna er
maður i raun pólitiskur. Að
minu viti er ekkert eins heill-
andi og tónlist þrungin raun-
verulegum tilfinningum og
gildir þá einu hvort þær eru
hressilegar eða af dapurlegum
toga. Pað sem heillar er að
hér er eitthvað raunverulegt á
ferð. Eitthvað sem snertir
mann." Svo mörg voru þau orð,
en vikjum nú aðeins að sögunni.
Prefab Sprout var stofnuð i
upphafi þessa áratugar i grend
við Newcastle, nánar tiltekið i
Durham.
Hljómsveitin var nokkuð
lengi að komast af stað. Það
var ekki fyrr en í ágúst 1982
sem fyrsta smáskifan kom út með
laginu "Lions in my own
garden." Lagið naut litillar
hylli, en náði samt sem áður
eyrum forráðamanna fyrirtækis-
ins Kitchenwhere. Fyrirtæki
þetta, sem er nátengt hinu
volduga CBS Records, gaf út
næstu plötu Prefab Sprout. Það
var i október 1983, en það fór
allt á sömu leið og áður. Áhugi
gagnrýnenda og almennings varð
ekki vakinn og platan féll í
grýtta jörð.
Prefab Sprout gaf út sina
fyrstu breiðskífu stuttu fyrir
áramótin 1983-84. Upptökur
tóku aðeins þrjár vikur, en
árangurinn er ótrúlegur miðað
við þann stutta tíma. Platan
var skirð SWOON.
Muninn 25