Muninn - 01.05.1986, Page 32
Mötuneytið
er sæmilegt
Nú upp á síSkastiÖ hefur rnikið verið rætt og raupað um mötu-
neytið, ágæti bess og ókosti. Mötuneytisráði fannst því tilvalið
að láta fara fram skoðanakönnun um það, til að kanna hugi nem-
enda, og fá e.t.v. einhverjar ábendingar um hvað mætti betur
fara. Skoðanakönnuninni var vel tekið, a.m.k. ef tillit er tekið
til fjölda skilaðra miða, sem var um 86 af hundraði.
Pab væri synd að segja að fólk hefði ekki notfært sér það að
geta komið ábendingum á framfæri, alls komu fram á fjórða tug
ábendinqa, oq voru þær af ýmsum toga spunnar. Við birtum hér
niðurstöður skoðanakönnunarinnar ásamt þeim ábendingum sem fram
komu:
Niðurstöður:
fjöldi
MJÖG GOTT 30 -> 15.2 %
GOTT 75 -> 37.8 %
SffiMILBGT 80 -> 40.4 %
LÉLEGT 7 -> 3.5 %
ÓGILDIR MIÐAR 6 -> 3,1 %
100 %
Alls skiluðu 198 miðum eða u.þ.b. 86 %
Um 75% gerðu athugasemdir.
Almennur áhugi er fyrir því að:
-kartöflurnar séu betur
soðnar
-fiskur sé matreiddur á
fjölbreyttari hátt
-þurrkurnar settar aftur á
borðin
-fleiri örbylgjuofnar á
sunnudögum
-fjölbreyttara álegg þegar
er skyr og brauð
Muninn 32