Jörð - 01.10.1943, Page 86

Jörð - 01.10.1943, Page 86
GRETAR FELLS: Opið bréf til ritstjóra JARÐAR y ISÍÐASTA licfti tímarits yðar minnist þér á síðasta hefti Gang- lcra og það, sem ég hef þar ritað um guðshugtakið. Þér nefn- ið þessar athugasemdir yðar: „Litið í Ganglera". Það er að vissu ieyti vel viðeigandi nafn, því að það er alveg áreiðanlegt, að þér hafið aðeins „litið í“ ritið, en ekk-i lesið vandlega, a. m. k. ekki það, sem þér vitnið í. Og sýnilega hafið þér „litið i“ ritið i alveg ákveðnum tilgangi. Því að svo litur út að minnstá kosti. að þér geriS yður fyrst og fremst far um að flækja það mál, sem ti! umræðu heíur verið milli okkar, og gera ritstjóra Ganglera hiægilegan. Þér leitist við að vera fyndinn eins og ritstjóri „Speg- ilsins“, en tekst ekki nándar nærri eins vel, og virðist það ekki vera sérgrein yðar. En liitt er þó miklu verra, að sumt, sem þér hafið eftir ritstjóra „Ganglera“, er með öllu rangt, og nálgast það leiðinlega mikið, að vera rökfals, og skal ég nú snúa mér að rit- smíð yðar. T-jA-B er með öllu rangt, að ég hafi nokkru sinni álasað kirkj- ' unni fyrir það, að hún notar líkingar. Þvert á jnóti. En hinu fann ég að, að svo virðist sem allmargir trúmenn staðnæmist við þessar líkingar, geri sér jafnvel ekki grein fyrir þvi, að um lík- ingar sé að ræða, og geri úr þeim grjót eitt, ófrjótt og andlaust. Þótt líkinagr séu góðar, svo Iangt sem þær ná, eru þær þó aldrei annað en éins konar „gríma“. Sá, sem skilur það, staðnæmist ekki við grímuna, en reynir að svipta henni hurt, eða að minnsta kosti að sjá í gegnum liana. Allur skilningur er i raun og veru i þessu fólginn. Ég veit ekki, hversu oft þarf að endurtaka þetta, til þess að ritstjóri JAEÐAR hætti að forherða hjarta sitt og höfuð og loka sér fyrir því, en sannleikur er það samt, sannleikur, sem þarf að koma sem allra flestum í skilning um. — Ég get vel skilið það, að ég sé enginn spámaður i augum yðar. Ég er óvígður maður, valdalaus í þessu þjóðfélagi, og einn af for- vígismönnum stefnu, sem er óvinsæl af bókstafstrúuðum mönnum. Þess vegna kemur sér vel og er handhægt að 'bera mér á brýn „yfirlæti" og annað slikt, af því að ég hef ákveðna sannfæringu í andlegum efnum og held þeirri sannfæringu fram með hispurs- lausri einurð. — En þegár þér farið að henda gaman að því, að ég kalla Poul Brunton einn af mestu spámönnum nútimans og vitna bæði i hann og Vivekananda, þá get ég ekki varist þvi að hneykslast! — Því að það er alveg áreiðanlegt, að háðir þessir 338 JÖRÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jörð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.