Jörð - 01.12.1943, Qupperneq 36
ins verks frá sjónarmiði byggingarlistar, er það, hversu vel
hefur tekist að sameina þetta þrennt: haganleik, traustleik
og lögun (áferð). Að því er lögun (áferð) snertir, þá er
vert að veita því athygli, að þar er hvggingarlistin óháðari
fyrirmyndum, en aðrar hinna meiri listgreina, og þvi veitir
hún betri skilyrði en þær til rannsókna á formum og afstöð-
um, án þess að óviðkomandi tillit glepji. Tilfinningaviðhorf
vort við meiningu þess, sem málverk eða höggmynd sýnir,
vill ávallt liafa meiri eða minni áhrif á dóm vorn um lögun
(áferð) þess í sjálfu sér. En hyggingarlist, sem ekki hefur
neinar fyrirmyndir utan sinna vébanda, gleður oss eingöngu
með hlutföllum sínum, innbyrðis afstöðum flata og lína
og þunga,, skreytingum — í einu orði sagt lögun (áferð)
sinni.
FfRIRSÖGN greinar þessarar gefur tilefni til spurningar
um, hvað átt sé við með orðatiltækinu nútíma-bygging-
arlist. Mörgum manninum koma helzt i hug, er Iiann heyrir
þetta orðatiltæki eða sér, undarlegar, óviðfelldnar bygging-
ar, hrjóstrugar, berar og snöggar, með liornglugga og flöt
þök. En það er auðvitað engin skýrgreining, heldur lýsing
á nokkurum sameiginlegum einkennum ýmissa nútíma-
húsa. Til að gera sér þess glögga grein, hvað nútíma-bygg-
ingarlist er, er langbezt að koma sér áður niður á, hver var
byggingarlist liðinna tíða.
í sögu byggingarlistarinnar er oss sýnt, sem í nokkurs-
konar kvikmynd, samfellt endurskin siða hins hverdagslega
lífs, hugsana og hugsjóna allra þjóða. Parþenon og þvílíkar
bj'ggingar hins forna Hellas innræta oss nærri þvi betur en
nokkuð annað hina skýru en allt fvrir það háleitu líeims-
skoðun, sem þar ríkti. Hér sjást, svo að ekki verður um
villst, dæmi um tilfinning þeirra fyrir samræmi og jafnvægi.
hugsjón þeirra um takmarkaða fullkomnun. í framhaldi
Rómverja á gríska stílnum kemur í ljós ný tælcni og verk-
fræði. Þeir þekktu sement, kunnu að steypa og urðu þannig
höfundar að fullkomnun bogans og hvelfingarinnar og
fyrstir allra lil að bvggja bús með tilliti til inna þess ekki
384 jörd