Jörð - 01.12.1943, Side 49
un á borgabyggingu Bandaríkjanna, til leiðréttingar á mis-
tökum iðnaðarhyggju 19. aldarinnar. Styrjöldin hefur haft
i för með sér stór spor í áttina. Stofnun nýrra verksmiðja
í stórum stíl hefur leitt til nauðsynjar þess að byggja yfir
verkamennina í nágrerini þeirra og þannig veitt bygginga-
meisturunum einstætt tækifæri til að lmgsa út heil liverfi
i einu eða meira og gera tilraunir m.eð framleiðslu húsa í
pörtum, sem svo eru send langar leiðir í allar áttir og eru
auðveld og ódýr að fella saman þar, sem húsið á að standa.
Þannig sést, að enda þótt hefðbundinn stíll megi sín enn
mikils, þá eru vonirnar, um nýtt og timaborið form, bjartar.
Ekkert land stendur betur að vígi en ísland, í því að koma
sér upp timabornum, stil, er sé til fyrirmyndar. Hér eru fá
hús yfir aldarfjói-ðungs-gömul, svo að ekki þarf nein hefð
hér að vera til trafala, sem annars staðar grúfir yfir bygg-
ingameisturunum með þúsund-ára-þunga. Varla nokkurs
■taðar í heiminum eru byggingameistarar jafnóbundnir af
fortíðinni.
RITGERÐ þessi er auðvitað fremur ætluð til þess að leiða
athygli að viðfangsefnum, heldur en til liins, að færa
fullnægjandi rök fyrir staðhæfingum liennar. Stuðst hefur
verið hér við eftirfarandi rit og skal mælt með þeim til
ítarlegri upplýsinga:
Behrendt, Walter C.: Modern Building, New York, Harcourt
Brace, 1937.
Giedion, Siegfried: Space, Time, and Architecture, Cam-
ln-idge, Harvard University Press, 1941.
Gropius Walter: The New Architecture and the Bauhaus,
London, Faber, 1935.
Wriglit, Frank, Lloyd: Modern Architecture, Princeton, 1931.
Mumford, Lewis: The Culture of Cities, New York, Harcourt
Brace, 1938.
Richards J. M.: An Introduction to Modern Architecture,
London Penguin Books, 1940.
JÖRÐ
397