Prestafélagsritið - 01.01.1924, Blaðsíða 19
PresfaíéiagsriiiB. Björn Jónsson prófastur í Miklabæ. 15
Sr. Björn var mikill hugsjónamaður, og sú hugsjónin, sem
hafði tekið hann sterkustum tökum var: Guðs ríki. Eg ætla,
að enga bæn sína hafi hann borið fram með meiri innileik
og krafti en þessa: Til komi þitt ríki. Komi það og geri bjart
í minni sál. Komi það og geri bjart í sálum vor allra. Og
guðsríkis-hugsjónir hans voru engar sérstakar helgidags-
hugsjónir, sem hann hélt sig við aðeins á sunnudögum eða
öðrum helgum dögum, þegar hann var í kirkjunni. Nei. Hann
vildi einmitt í hversdagsháttum sínum láta þær verða leiðandi
fyrir sig, fá öfl vilja síns og tilfinninga til að lúta þeim, skipa
sér undir merki þeirra. Og kraftinn til þess sótti hann til
trúarinnar. En hún var í hans augum umfram alt þetta: lif-
andi samband við Guð, líf í Guði; það ástand sálarinnar, að
maðurinn verður fyrir stöðugum áhrifum frá Guði, sem láta
hina heilögu eiginleika hans stöðugt streyma inn í manns-
hjartað og rýma þaðan í burt því, sem ilt er og syndsamlegt
°9 gagnstætt Guðs vilja.
Það var þetta ástand sem honum fanst Valdimar biskup
gefa svo góða lýsinga af í þessu fagra erindi:
„Þinn andi, Guð, mift helgi’ og betri hjarta,
og hreinsi það frá allri villu’ og synd.
Og höll þar inni byggi dýra’ og bjarta,
er blíða sífelt geymi ]esú mynd“.
Inni í höll trúarinnar var engin mynd, sem jafn mikið lýsti
af í augum sr. Björns og »Jesú mynd«, og honum var lífs-
nauðsyn að ekki félli á hana. Þess vegna þurfti hann iðulega,
já daglega, að lesa um hann í guðspjöllunum, til þess að fá
myndina sífelt að nýju skýrða upp. Hún lýsti honum að hjarta
Quðs. Það var hans trúarreynsla, að þangað yrði ekki aðra
leið komist. Kristur var honum »vegurinn, sannleikurinn og
lífið«, og alt það dýpsta og innilegasta í trúarlífi hans, stóð
í jafn nánum og órjúfanlegum tengdum við Krist, eins og
lækurinn við lindina.
Sr. Björn var mjög áhugasamur í prestsstarfi sínu og stund-
aði það af hinni mestu alúð og vandvirkni. Löngunin var svo
sterk, að gera þar gagn, og augun opin fyrir þörfinni á því