Prestafélagsritið - 01.01.1924, Blaðsíða 23
Preslafélagsriliö.
Hvað er kristindómur?
19
svo úr spurningunni, að allir menn á öllum tímum hefðu get-
að leitt spurninguna hjá sér, hefði það verið sönnun fyrir því,
að kristindómurinn væri ekki það sem hann hefir verið talinn
að vera — hinn algeri átrúnaður, hinn trúarlegi sannleikur í
sinni algeru mynd.
Til þess að fá greitt úr þessari miklu spurningu, mætti virð-
ast, að beinast lægi við að spyrja nýja testamentið. En svarið
er þar alls ekki svo á takteinum, sem margur kynni að
ætla. Því að n.t. er ekki nein kenslubók í trúfræði, heldur
vitnisburður frúaðra lærisveina um Krist. Þar koma fram
ólíkir skoðanahættir, svo að menn hafa jafnvel getað talað
um kristindóm Páls, kristindóm Jóhannesar, kristindóm Jak-
obs og kristindóm elztu guðspjallanna þriggja, svo sem ólíkar
stærðir, og er þó lifandi lærisveinsafstaða til Jesú Krists
sameiginlegt einkenni þessara höfunda allra. Skoði eg spurn-
inguna í ljósi kirkjusögunnar, verður sama upp á teningnum,
svörin þar svo sundurleit og sitt með hverju mótinu, að lítil
leiðbeining er að því fyrir oss, er vér viljum fá ákveðið svar
við spurningu vorri, nema vér séum fyrir fram fastákveðnir
í að hlíta úrskurði þess, er þar verður fyrst fyrir oss, og að
virða að vettugi skoðanir annara.
Lítum vér því næst til höfuðdeilda kirkjunnar í von um að
fá þar svarið, fer á sömu leið. Svörin verða sitt með hverju
mótinu. Hver þeirra um sig bendir á sínar sérstöku játningar
segjandi: Hér er gerð grein fyrir hinum sanna kristindómi,
þ. e. kristindóminum í sinni upphaflegu mynd og rétta eðli.
Katólskir menn mundu benda oss á kirkjuna, hina óskeikulu,
guðdómlegu stofnun, og segja: Kristindómurinn er trúin á heil-
aga, almenna kirkju, svo sem hina miklu hjálpræðisstofnun
Guðs, sem utan vébanda hennar enginn fær höndlað hinn
guðdómlega sannleika, og þá ekki heldur hið guðlega náðar-
hjálpræði. Kristinn er sá, sem trúir á hina heilögu, almennu
kirkju og geldur jákvæði öllu því, sem hún kennir og krefst.
Þessu svari hafna mótmælendur einum rómi, en án þess þó
sjálfir að geta orðið fyllilega sammála um svarið. Lengst af
hefir kristindómurinn innan mótmælenda-kirknanna verið fólg-