Prestafélagsritið - 01.01.1924, Qupperneq 31
Prestafélagsritið.
Hvað er kristindómur?
27
Kristindómurinn verður aldrei skilinn frá Kristi sjálfum; enda
vitum vér, að kristindómurinn hefir aldrei verið fluttur svo.
Enginn minsti efi leikur á því, að Jesús hefir áreiðanlega
eignað sjálfum sér persónulega trúarlega þýðingu fyrir læri-
sveina sína. Þetta er þegar, þó ekki væri af öðru, auðsætt af
því, hversu lifandi traust til boðskapar hans, sem aftur sprett-
ur fram af lifandi trausti á honum sjálfum, var frumskilyrði
fyrir viðtöku boðskaparins af þeirra hálfu. Fagnaðarerindis-
boðskapurinn, eins og lærisveinarnir fluttu hann eftir að ]esús
var frá þeim horfinn að sýnilegum návistum, varð og hlaut
að verða ekki aðeins boðskapur þess, sem hafði verið megin-
efni prédikunar Jesú, heldur einnig boðskapur um Jesú
sjálfan. Hvar sem þeir tala um »fagnaðarboðskapinn«, þá er
það ávalt meðfram boðskapurinn um Jesú Krist, Guðs son.
Postular Jesú hafa auðsjáanlega aldrei skilið hann á þá leið,
að þeir ættu eingöngu að útbreiða kenningu hans eins og
svo oft er gefið í skyn af mönnum í ræðu og riti. Og það
er þá ekki heldur fagnaðarerindið, að því leyti sem það berg-
málar kenningu Jesú, sem sigrað hefir heiminn og gert kristin-
dóminn að því stórveldi, sem hann óneitanlega er orðinn í
heiminum, heldur fagnaðarerindið að því leyti sem það jafn-
framt er fagnaðarerindi um Guðs son, dáinn fyrir oss og upp-
risinn oss til réttlætingar. Með fagnaðarerindið um Guðs son
fyrst og fremst lögðu postularnir út í heiminn, eftir að þeir
höfðu sannfærst um upprisu hans og með henni um það, að
hann væri sá sem hann hafði sagst vera, sem sé Guðs sonur.
Þegar því ræða er um kristindóminn svo sem »sonarlegt
trúarsamlíf Jesú við Guð endurborið í sálum lærisveina hans«,
þá er þess að minnast, að skilyrðið fyrir þessu er beint á-
kveðin afstaða til Jesú sjálfs svo sem erindreka þess Guðs,
sem hann boðaði oss sem föður, svo sem fulltrúa Guðs til að
framkvæma Guðs stórvirki á jörðunni. M. ö. o. sonarlegt trúar-
samlíf Jesú við Guð getur ekki endurborist í sálum vorum án
trúarinnar á hann þ. e. án lifandi trausts á honum svo sem
þeim, er hann sagðist vera. Svo var því þá líka farið með
lærisveina Jesú forðum daga. Vitnisburður Jesú um föð-