Prestafélagsritið - 01.01.1924, Page 34
30
Jón Helgason:
Prestafélagsritið.
arinnar; því að útlistanirnar, svo nauðsynlegar sem þær eru,
viðkoma í rauninni alls ekki trúnni öðru vísi en sem útlist-
unar-tilraunir. Það sem áríður fyrir oss er, að vér ruglum
ekki saman trúarlegu staðreyndunum sjálfum og útlistunum
þeirra, sem vér eigum þar sem eru kennisetningar kirkjunnar
eða kannske öllu heldur guðfræðinganna. Og þessa ber ekki
sízt að gæta, er vér stöndum gagnvart sjálfri persónu Jesú
Krists, að vér þar ekki ruglum saman hinni sálfræðilegu stað-
reynd, trúarlegri sjálfsvitund Jesú, eins og hún birtist í lifandi
sonarlegri guðrækni hans, og hinum guðfræðilegu útlistunum
á þessum staðreyndum eða kennisetningunum sem utan um
þær hafa ofist. Trúarleg sjálfsvitund Jesú er ávalt og alstaðar
hin sama, en kennisetningarnar hver annari ólíkar og sí-
feldum breytingum háðar.
Af engu er þetta oss jafn augljóst og af þróunarsögu lær-
dómsins um guðs-sonerni Jesú. Af öllu áreiðanlegu er það
að minni hyggju áreiðanlegast, að Jesús sagðist vera Guds
sonur. Þetta er beint hjartablað trúarlegrar sjálfsvitundar hans,
rót og grundvöllur alls guðs-sambands hans, alls trúarsamlífs
hans við Guð, sem eg því hefi kallað sonarlegt trúarsamlíf. Eins
vitum vér öll og finnum, að ekkert nafn samsvarar betur
hinni yndislegu mynd hans, dýrð hins innra manns eins og
hún ljómar á móti oss í guðspjöllunum, en einmitt sonarnafnið,
sem hann notar sjálfur til að lýsa með afstöðu sinni til Guðs.
Því er nú ekki að neita, að útlistanir guðfræðinganna á
guðssonar-hugmyndinni hafa ekki ávalt reynst jafn hollar fyrir
kristindóms-tileinkunina hjá leikmönnum innan safnaðanna, og
að Kristmyndin, sem ríkjandi varð innan kristinna safnaða,
fjarlægðist einatt um of þá mynd, sem vér eigum í guðspjöll-
unum. En af því leiddi aftur, það er sízt skyldi, að mönnun-
um vildi gleymast hinn náni skyldleiki, sem er milli sonar-
legrar guðrækni vorrar, að hann hefir sjálfur lifað því trúar-
samlífi við Guð hér í tímanum, sem hann ætlar oss að lifa
Iærisveinum sínum, svo að hjá honum fyrst og fremst er að
fá þá útskýringu á eðli kristindómsins, sem vér leitum að með
spurningunni: Hvað er kristindómur?