Prestafélagsritið - 01.01.1924, Side 64

Prestafélagsritið - 01.01.1924, Side 64
60 Hálfdan Helgason: Preslafélagsritiö. í Sundar yfirgaf svo heimili siti og hélt á burt út í óvissuna, aleinn og vinum horfinn. Sundar hélt nú til Rapur, bæjar er lá skamt frá, til fundar við trúbræður sína þar. Þar var honum tekið tveim höndum, en skyndilega varð hann mjög veikur. Síðasta máltíðin í föðurgarði hafði verið blönduð eitri. Læknir var sóttur og kvað hann eitur þetta svo banvænt, að Sundar væri ekki ætlandi líf næturlangt. Sá spádómur rættist þó ekki, en í marga daga var Sundar milli heims og helju. A meðan veittu ættingjar hans honum hvert banatilræðið á fætur öðru. En dauðinn varð að lúta í lægra haldi. Sundar smáhrestist. A sextánda fæðingardegi sínum, 3. sept. 1905 tók hann skírn. Honum var það ljóst, hvert alvöruspor hann hefði stigið og hvers hann átfi að vænta í framtíðinni. En hann var með öllu óhræddur og ókvíðinn. Sem erindreki og þjónn drottins lagði hann nú af stað, klæddur hinum gulu klæðum »sadhuans«, án peninga, án malpoka, án matar og án stafs. Ollum sínum áhyggjum varpaði hann upp á drottin sinn. Alt, sem hann þurfti með, á þeirri krossgöngu, sem nú fór í hönd, fann hann í 23. sálmi Davíðs: »Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta«. Þannig útbúinn hóf Sundar Singh fyrstu trúboðsferð sína. En í hjarta hans brann heilagur eldur lifandi guðstrausts og fórnandi kærleika, eldur, sem logaði því skærar, því fleiri örð- ugleikar, sem urðu á leið hans. Dögum saman gekk hann um landið dauðþreyttur og með blóðugar fætur. Dögum sam- an hafði hann ekkert annað til matar, en þurrar brauðskorp- ur og óhreint, staðið vatn. A nóftunni varð hann oftast að hafast við í myrkum hellisskúía, því hver vildi hýsa slíkan trúníðing og þjóðarsvikara? En alstaðar og við öll tækifæri boðaði hann frelsara sinn og drottin. Ekkert gat aftrað hon- um, hvorki skæðar drepsóttir eða grimmileg píslartæki of- stækisfullra óvina. En þótt ferð hans yrði honum að mestu leyti, að því er hið ytra snertir, sannkölluð píslarganga, þá varð hún honum einnig fagnaðarrík sigurför. Því að samfara ytri þjáningum efldist innri friður og gleði hjartans. I öllu, smáu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134

x

Prestafélagsritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prestafélagsritið
https://timarit.is/publication/489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.