Prestafélagsritið - 01.01.1924, Blaðsíða 124
120
Erlendar bækur.
Prestafélagsritið.
„Det gamle testamentes profeter: — VI. Under fangenskapet.—
VII. Under og efter fangenskapet. — VIII—IX Profetien i alminde!ighet“.
Av professor Karl Vold. — Lutherstiffelsens forlag. Krisfiania 1922 og 1923.
Fyrri hefta bókar þessarar hefir verið getið hér í ritinu í 4. og 5.
árg. Með þessum þremur heftum er bókinni lokið og er hún alls 473
bls. — Höfundur er laerður guðfræðingur, íhaldssamur í skoðunum, pró-
fessor í gamlatestamentisfræðum við „Safnaðarháskóladeildina" (Menig-
hetsfakultetet) í Kristjaníu. Er bókin skýr og greinagóð.
Sigurd Odland: „Johannes-evangeliets egthet. Seks brever til en
kristen Iægmand“. — Kristiania 1923. Lutherstiftelsens forlag. — 142 bls.
Höfundur er með vandamálið um postullegan uppruna Jóhannesar
guðspjalls og skrifar bók sína til að leiðbeina norskri alþýðu í þeim efn-
um. Heldur hann því fast að Iesendum sínum, að fjórða guðspjallið sé
samið af jóhannesi postula og að allar vefengingar á slíku séu allskostar
óréttmætar.
Dr. O. Hallesby: „Synd og naade. Korte prækener til alle kirke-
aarets sön- og helligdage“. — Andet oplag. — Kristiania 1923. Lulher-
stiftelsens forlag. — 288 bls.
Þessar stuttu hugvekjur út af guðspjallatextum helgidaganna eru ljósar
og alþýðlegar og tala ákveðið til viljans. Munu margir eftir að hafa lesið
hugvekjurnar geta tekið undir dóm séra Þ. Br. í umsögn í síðasta árg.
Prestafélagsritsins um aðra bók eftir dr. Hallesby, að „betur takist
honum að prédika oss guðrækni og sálubót, en rita ádeilugreinar."
„Norsk leologisk tidskriff 1923“. — Kristiania. Gröndahl & Söns
forlag. —
í þessum árgangi tímarifsins er meðal annars góð yfirlitsgrein um
kirkjulíf í Danmörku 1922—1923 eftir sóknarprest Th. Lomholt Thomsen.
En eftirtektarverðust þykir mér ritgerð um trúarlífssálarfræði eftir Niðar-
óssbiskupinn dr. ]. Gleditsch. Nefnir hann ritgerðína „Indförelse i reli-
gionspsykologi“ og talar þar um afturhvarf manna og hvernig það hafi
birzt á mismunandi hátt á ýmsum tímum og undir ólíkum aðstæðum,
orsakir þess og afleiðingar, um tímabil það í æfi manna, er þeir séu
næmastir fyrir frúarlegum áhrifum, o. fl.
Víðsvegar um hinn mentaða heim er nú mikil stund lögð á sálfræði-
legar rannsóknir trúarlífsins og er mikilsvert fyrir presta að kynna sér
árangur þeirra rannsókna. Vil eg í þessu sambandi benda á góða enska
bók um þau efni útkomna á síðastliðnu ári: „Christianity and Psychology.
Ðy F. R. Barry. London 1923. Student Christian Movement". -— Kostar
5 shillings í bandi.
S. P. S.