Vekjarinn - 01.06.1903, Blaðsíða 8
8
þína ofan í poka og hinda fyrir, eins og þu þurfir
að blygðast þín fyrir að eiga annað eins?
Kristur sagði að vjer skyldum ekki setja ljós
vor undir mæliker heídur láta þau lýsa öðrum mönn-
um, og jeg vona að þú sjert sammála mjer um, að
ekki veiti af því, ofmargir sjeu að ráfa í myrkrinu.
Ó, að þú vildir biðja guð um meiri djörfung og
kærleika, svo að þú gætir ekki þagað um dásemdir
drottins, ef þú annars ert barn guðs.
— -^ooO"--
Komí
Þannig byrjar frelsarinn ætið. Hann segir:
„kom!“ En það eru margir menn, sem byrja öðru-
vísi.
Það var einu sinni lítill drengur, sem hjet
Jón. Menn sögðu við hann: „Farðu! Farðu í
kirkju Jón, — farðu að lesa bænirnar þínar Jón!“,
svo hljóðaði það sífelt.
Pað var kaliað uppeldi.
Þeir, sem sögðu þetta, fóru reyndar ekki sjálfir,
en þegar hann vildi ekki „fara“, var hann kallaðui
ílla innrættur strákur.
Ekki batnaði það, þegar hann fór í skólann og
því siður, þegar hann fór að ganga til prestsins. —
Allir sögðu: „fú skalt!“ — „Farðu!“ Honum
leiddist þetta „farðu!“, leiddist kristindómurinn, því