Vekjarinn - 01.06.1903, Blaðsíða 23

Vekjarinn - 01.06.1903, Blaðsíða 23
23 lega í kiingum sig. Þegar hann kom auga á prest- inn, reis hann upp með leiftrandi augum og hrópaði æðislega: “ „Hvaða erindi eigið hjer? Farið þjer út. Getið þjer ekki lofað mjer að deyja í friði? Ef þjer farið ekki strax, þá skal jeg.“ — — Hann kreppti hnef- ann, augun ætluðu alveg út úr höfðinu og hann gjörði tilraun til að stökkva fram úr rúminu. Litla stúlkan fór að hágráta og hljóp til föður síns, en presturinn vjek henni hægt til hiiðar, greip um handlegg sjúklingsins og ýtti honurn með hinni hendinni aptur á bak niður á koddann. frjóskan og bræðin skein út úr augum sjúklingsins, en prest- urinn horfði fast og rólega á móti, og við það sefaðist hann brátt. Hann var eins og villidýr, sem verður að lúta vilja dýratemjarans; hann reyndi að horfa i aðra átt, en það var eins og hann gæti ekki horft annað en í augu prestsins. „Yður skjátlast," sagði presturinn rólega. „Jeg ætla ekki að gjöra yður neitt illt. Jeg vil feginn verða yður að liði, ef jeg get.“ Sjúklingurinn hló kaldahlátur. „Þjer ætlið að verða mjer að liði! Pað er senni- legt! Farið þjer, jeg hata yður! — Mjer er ekki eins illa við nokkurn mann í veröldinni eins og við yður!“ „Því hatið þjer mig?“ Hann horfði enn þá stöðugt í augu sjúldingssins, og það var eins og augnatilit hans neyddi hann til að segja satt. (,Hvers yegna! — Af þvj að þjer hafið vakið

x

Vekjarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vekjarinn
https://timarit.is/publication/500

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.