Vekjarinn - 01.06.1903, Síða 16
16
vita um það, þá verö jeg ekki fyrir neinu aðkasti
hjá spjátrungunum." Ef þú skyldir vera i tðlu
þessara manna og spyrja:
„Því jtarf jcg af» láta aðra vita um trú
mina?“ Pá eru svörin þessi. — Hrek þau ef þú
getur. —
1. Af því að rnenn kveikja ekki ljós til að
setja það undir mæliker. (sbr. Matt. 5. 15.)
2. Af því að, ef þú kannast við hann fyrir
mönnunum, mun hann kannast við þig fyrir föður
sínum á himnum (Matt. 10. 32.)
3. Af því að þú kemst ekki í tölu útvaldra,
ef þú skammast þín, fyrir að vera barn Guðs. (Matt.
10. 33.).
4. Af því að sá, sem vill bjarga lífi sínu hjer
í heirni, mun missa það hinu megin. (Matt. 16. 25).
5. Af því að Jesús sagði: Hver sem vill
fylgja mjer afneiii sjálfum sjer, taki kross sinn og
fyigi mjer eptir." (Matt. 16. 24).
5. Af því að með hjartanu er trúað til rjett-
lætis, en með munninuin viðurkennt til hjálpræðis.
(Róm. 10. 10).
7. Af því að af ávöxtum skulu menn þekkja
þá. (Matt. 7. 16).
8. Af þvi að Kristur gotur ekki dulizt, og
hann sagði: „Jeg er í þeiin.“ (Jóh. 17. 23.)
9. Af því að það er ómögulegt að vera hvorki
með nje móti. (sbr. Matt. 12. 30.).
10. Af þvi að guð frelsar ekki manninn ein-
ungis til þess að hann komist í himnaríki heldur