Nýjar kvöldvökur - 01.03.1913, Side 24
72
NYJAR KV0LDV0KUR.
Upphaf og botnar
að vísuhelmingunum í Kvöldvökunum Nr. 12 1912:
Þegar heimsins o. s. frv.
Vera Iokuð inni ein
hjá ungum sveini eg vildi.
I.
Egill fólum fimm og sex
frækinn stóð á sporði.
Eftir því sem aldan vex
árar fjölga á borði.
Hafs að vanga hallast sól
hamradranga undir;
vors í fangi á fríðum kjól
foldar anga grundir.
Annars vil eg hafa þessa vísu svona:
Vors í fangi á fríðum kjól
fagrar anga grundir;
lón og dranga ljóshærð sól
leggur vanga undir.
Sigurjón Friðjónsson.
Hafs að vanga o. s. frv.
þá byrjar ganga og gatnaról
og glaðar fangast stundir.
V.
Eins og þegar þrætupex
þróast orð af orði,
Eftir því sem aldan vex o. s. frv.
Hafs að vanga o. s. frv.
Veg sinn ganga hnattahjól
heims um langar stundir.
G. Kr.
VI.
Hafs að vanga o. s. frv.
Blómin fanga blund á hól
birki- anga lundir.
II.
Förum heldur sjö en sex
samkvæmt stjórnarorði.
Eftir því sem aldan vex, o. s. frv.
Þegar heimsins o. s. frv.
Þá mun tendrast trúin hrein
og traust á drottins mildi.
Aðalbjörg Jónsdóttir.
Þegar heimsins þjaka mein
þekkist lífsins gyldi.
Að veginn skreyti unun ein
enginn treysta skyldi.
Hafs að vanga o. s. frv.
Hlés í fangi frið og skjól
finnur langar stundir.
B. E.
III.
Framan í eina og aðra sex
Ægir horfa þorði,
Eftir því sem aldan vex o. s. frv.
Þegar heimsins o. s. frv.
Reynsla er fræði- gagnsöm grein,
gæta vel þess skyldi.
Hafs að vanga o. s. frv.
Bárur ganga á gyltum kjól
glaðar langar stundir.
S. H.
IV.
Lífsins haf þó segi sex
sé til gáfna forði:
Eftir því sem aldan vex o. s. frv.
VII.
Frá því vetra var eg sex
veðrið beint í hor’ði.
Eftir því sem aldan vex o. s. frv.
Þegar lífsins o. s. frv.
Barna hugsun blíð og hrein
breytist fyr en skyldi.
Hafs að vanga o. s. frv.
Oft hún gang og geisla fól
grímu langar stundir.
VIII.
Unnustur eg átti sex,
engin lengra þorði;
eftir því sem aldan vex
árar fœkka á borði.
Þegar lífsins o. s. frv.
Aldan knörinn yfir gein
og ástvinina skildi.
Hafs að vanga o. s. frv.
Nótt í fangi foldarból
felur langar stundir.
Framh.