Nýjar kvöldvökur - 01.04.1930, Blaðsíða 2

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1930, Blaðsíða 2
Fjárhagsleg afkoma heimilanna veltur að miklu leyti á hyggindum húsmóður- innar. Það er hún, sem jafnaðárlega ákveður, hvaða vörur eru keyptar til heimilis- ins, og hvar þær efu keyptar. Vegna þess er það sérstaklega nauðsynlegt fyrir húsmóðurina, að hafa vel vakandi auga á öllu nýju, sem býðst, athuga það, og reyna' hvort ekki er betra og ódýrara en það, sem áður hefir fengist. — Því spar- aður eyrir er græddur. — Smjörlíkisnotkun fer stöðugt vaxandi, en með vaxandi notkun ríður á að vanda enn betur en áður val á vörunni. Þegar þér veljið smjörlíki handa heimili yðar, þá þurfið þér að sannfæra yður um, að það hafi eftirtalda kosti: 1. Sé vel feitt, svo lítið þ'iirfi af því, sé Ijúffengt, mjúkt og -nve ringarmikið og sem líkast smjöri að bragði. 2. Sé gott til að steikja í því kjöt, fisk, og hvað sem er. 3. Sé gott til notkunar við brauða- og kökugerð. Allir smjörlíkisframleiðendur geta búið til smjörlíki, sem er magurt og bragð- laust, en slík vara er óheppileg fyrir húsreikninginn, því hún er ódrjúg. Vandinn við að búa til gott smjörlíki er að hafa það sem allra feitast (næring- armest) og mýkst, án þess þó að beri á viðsmjörsbragði. Þetta tekst aðeins í góðum húsakynnum, með bestu vélum og nákvæmri vinnu sérfróðra manna. F L ó R A er búin til í fullkomnustu smjörlíkisverksmiðju landsins, bæði hvað áhöld og húsrúm Snertir, þessvegna er hægt að viðhafa við framleiðsluna hið fullkomnasta hreinlæti, og þess vegna er geymsluþol »Flóra«-sjörlíkis mikið. F L ó R A er búin til úr fyrsta flokks hráefnum og fyrir tilbúningnum stendur sérfræðingur, sem um fjölda ára hefir unnið við stærstu smjörlíkisverksmiðjur erlendis. Vegna alls þessa er það, að: F L ó R A er frábær sem viðbit. FLÓRA er afbragð til að steikja í og F L ó R A er ágæt til bökunar. —--------»-------- Reynið »F Ló R A« og þér munuð sannfærast um ofantalda kosti. FLÓRA er seld í Kjötbúðinni, Brauðbúðinni, Hafnarsti-æti 23 og öllum vel birgum matsöluverzlunum í bænum. Ennfremur verður það til sölu í kaupfélög- um og verzlunum hvar sem er á landinu. ÁKURBYRI.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.