Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Page 4

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Page 4
146 NÝJAR KVÖLDVÖKUR eftir öllu sem þú segir mér. Ég var bara að hugsa ofurlítið um Evy.“ „Ofurlítið,“ enduritlók hann háðslega. „Þú hefir í raun og veru ekki um annað hugsað síðan þú lokaðir hurðinniáeftirþérheima.11 „Nei, hvað segirðu nú?“ „Ég skil ekkert í,“ hélt hann áfram — hálf gramur enn — „að þú, sem ert svo framúrskarandi skynsöm, skulir láta Evy hringsnúa þér svona.“ „Nei, en góði Árni!“hrópaðiRuthskelkuð. „Ég hélt að þér geðjaðist vel að Evy.“ „Já, mér geðjast ágætlega að telpunni. Hún er sæt, og hún er systir þín. En ég get ekki þolað, að hún skuli eyðileggja þetta inndæla kvöld fyrir okkur. Þetta kvöld, sem ég hafði haldið að myndi verða------.“ Hann þagnaði allt' í einu „Myndi verða hvað, Árni?“ spurði Ruth lágt. Hann leit niður á spyrjandi andlitið, sem horfði upp til hans. „Ruth litla,“ sagði hann þýðlega. „Ég ætla ekki að segja þér það núna — því þú veizt það. Við skulum heldur ekki tala um það, því það kvöld, sem við tölum um það, átt þú ekki áð hafa neitt annað í kollinum en það sem okkur báðum viðvíkur, þér og mér. Nú veiztu það líka. Og það kvöld kemur eflaust. Heldurðu ekki það, Ruth?“ „Jú,“ sagði Ruth, „það kemur víst.“ Árni Lindgren hló ofurlítinn hamingju- þrunginn hlátur og þrýsti handlegg Ruth. „Já, þegar ég aðeins veit það, þá getum við vel spjallað um Evy!“ „Já, geturðu skilið hvað gekk að henni?“ spurði Ruth með ákafa. „Hreinskilnislega sagt, finnst mér það ekki þess vert að brjóta heilann mn það,“ sagði Árni, „en viljirðu gjarnan fá svar, þá verð ég að segja að ég hefi ekki hug- mynd um það.“ Nokkrum dögum síðar fékk Árni Lindgren dálitla hugmynd um það, samt sem áður. Það var er þau Ruth, Tit og hann sjálf- ur fylgdu Evu á járnbrautarstöðina. Eva teygði sig út um vagngluggann al- búin að veifa síðustu kveðju sinni til þeirra. Árni teygði sig upp til hennar og hélt sér í gluggakarminn. „Jæja, Evy litla,“ sagði hann ertnislega, „nú geturðu trúað gömlum vini fyrh því, hvers vegna þú flýrð úr bænum. Já, því það gerirðu, er ekki svo? Er það einhver sem bíður þín heima; eða einn hérna sem þú strýkur frá? Trúðu mér fyrirþvíEvy! Þær þarna heyra ekki neitt!“ Eva varð allt í einu eldrauð í framan. Asj! Roðnaði hún? Gæti hún ekki svarað honum í sömu mynt? Auðvitað! Og upp úr óvenju nuglingslegri rusla- skrínu heila síns tíndi hún eina af perlum Wildenveys og þeytti í hann: „Somme mannfolk er sá dumme, at de kan’ke dö.“* Til allrar hamingju fyrir þau bæði var blásið til burtferðar, og lestin tók að síga af stað. Hann stóð grafkyrr og alveg forviða og starði á eftir lestinni, en Ruth og Tit veif- uðu og hrópuðu í Evu, sem hvergi sást, af því hún hafði hnigið niðiur í sætið, falið eldheitt andlitið í höndum sér og kallað sjálfa sig grasasna og öðrum enn verri nöfnum. Nokkrum dögum síðar kom bréf frá Evu, og þar eð ávarpið hljóðaði: Kæra Ruth og e. t. v. aðrir, þá las Árni það líka. Það var nauðalíkt henni og hljóðaði svo: „Þú hái Hornafjarðarmáni, allt það sem ég hefi farið á mis við, ef ég hefði dvalið lengur í hinni miklu borg! Fegurðarsam- keppni og nýr fulltrúi hjá amtmanninum! Eins og ég hafði búizt við, var hver ein- asta karlmannshræða ánetjuð hjá vinkon- um mínum. Fulltrúinn auðvitað líka, en það var nú hægðarleikur að losa hann úr * Sumir karlmenn eru svo heimskir, að þeir geta ekki dáið. Þýð.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.