Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Blaðsíða 5

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Blaðsíða 5
STARFANDI STULKUR 147 möskvanum! Ég lét bara sem ég sæi hann ekki, og þá var honum lokið, og nú er hann skósveinn minn. Það gekk með straumlínubílhraða. Apropos straumlínu- bílhraða, þá segir mamma að ég hafi haft gott af dvölinni í Osló, því nú sé ég orðin svo snögg í snúningum og fljót að -öllu. En hraðinn sá arna er nú í því fólginn að ég flýti mér að ljúka af öllu sem mamma biður mig um, svo að ég geti komizt út sem allra fyrst og hitt hinn eða þennan. Og það er nú oftast fulltrúinn. En hugsið þið ykkur, svo var hérna fegurðarsam- keppni í gær! Hver einasti birkistóll og bekkur í stórasalnum í verkamannahús- inu var setinn. Allir sátu og gláptu og gláptu á þessar stelpur sem þeir höfðu séð á hverjum einasta degi alla þeirra ævi. Og þær völsuðu og beygðu sig og bugðuðu fram á leiksviðið og vissu ekki hvað þær áttu að gera af höndum og fót- um. Maður gat nærri því dáið af því að horfa á þær. Ólína Rokset — þú manst eflaust eftir henni — á skemmtiskránni hét hún annars Ollí Rockseth, og það lík- aði mér ágætlega, hún vann og var kjörin fegurðardrottning og við hippuðum og öskruðum húrra fyrir Ollí, sem var ann- ars alveg töfrandi og á nú að fara til Ós- lóar á fegurðarsamkeppni þar. En fulltrú- inn, sem sat á sama stól og ég, sagðist vera hálukkulegur af því að ég var ekki í samkeppninni, því þá hefðu það orðið verðlaun og hringsnúningur um hæl aftur til Óslóar, sem honum hefði auðvitað orð- ið alveg óbærilegt. Ég er agalega skotin og finnst að bærinn sá arna sé sá inndæl- asti í heimi. Ég vona að þér líði vel, og að þú lánir ekki Tit allt sem þú átt og hefir, svo að þú sjálf að lokum verðir að fara í leik- húsið í sundbol. Og svo vona ég að þú seljir ódæmin öll af blómum og að þú blómgist sjálf og hafir það gott. Heilsaðu Aggí, Tit og Árna. Þín Evy.“ „Alveg eins og þú sjáir og heyrir hana sjálfa,“ sagði Árni hlæjandi og rétti Ruth aftur bréfið. Hann var glaður og fannst eins og þungri byrði væri af sér létt. Það hafði þá aðeins verið ímyndun ein hjá honum, er hann hélt að------ Það var hollt fyrir hjartafrið hans, að hann sá ekki Evu, er hún klessti frímerk- inu á bréfið og tautaði við sjálfa sig: „Svona, hún sýnir Árna það auðvitað, og svo getur hann hætt að halda það sem ég sá að hann hélt, þegar hann stóð á brautarpallinum og ég hafði heimskað mig svo mikið.“ * Litla aðstoðarstúlkan hjá Ruth hafði fengið frítt eftir klukkan fjögur, og Aggí gat því miður heldur ekki verið í búðinni eftir fjögur, því að Friðrik vesalingurinn varð að fá miðdegisverð, er hann kom heim frá skrifstofunni, þreyttur og upp- gefinn, og þar eð Ruth gat ekki verið ein- sömul í búðinni frá fjögur til sex, þá hringdi hún til Tit og spurði hana, hvort hún gæti ekki hjálpað henni þessar tvær khikkustundir. Tit var fús til þess. Hún átti að fara með Eker á bíó klukkan sjö, en fram að þeim tíma gat hún verið hjá Ruth. Það var rétt komið að lokunartíma. Ruth var að eiga við blóm inni í bakher- berginu og spjallaði við Tit sem sat á gólfinu innan við litla búðarborðið og tók til í skúffu, sem var full af seglgarns- spottum og pappírsrusli. „A ég að vinda upp seglgarnsspottana þá arna, Ruth?“ spurði Tit. „Æ já, ef þú nennir því,“ svaraði Ruth kæruleysislega. „Þó það sé nú svo sem lítið gagn í því hvort sem er.“ „Það skalt’ ekki segja, það skalt’ ekki segja,“ tautaði Tit. 19*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.