Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Page 6

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1937, Page 6
148 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Rétt í þessu opnuðust búðardyrnar og roskinn maður, virðulegur útlits, kom inn og lokaði hurðinni hægt á eftir sér. Hann litaðist um og ætlaði einmitt að fara að ræskja sig til að gera vart við sig, er þýð rödd fyrir innan græna dyratjaldið sagði: „Hér eru eftir ódæmin öll af blómum!“ Og björt og glaðleg rödd einhvers stað- ar í búðinni svaraði: „Já, það sem þú nú þarfnast mest er ein eða tvær jarðarfarir!“ „Þú segir það. Já, jarðarför myndi gera kraftaverk í fjárhirzlunni,“ sagði Ruth inni í bakherberginu. Gamli maðurinn settist hljóðlega á stólinn hjá skrifborðinu og hlustaði með athygli á samræðurnar. „Já, hvernig er það?“ spurði Tit. „Er ekki gamli Eilertsen veikur. Það yrði svo sem enginn heimsbrestur, þótt hann hrykki upp af! Og það yrðu nú kransar, góða mín! — Þú átt þá ekki von á öðrum mannslátum?11 Ruth hló. „Það er nærri því ljótt að heyra til þín, Tit! En ég verð þó að játa, að nokkrar kransapantanir myndu koma vel með, og ég býst ekki við að margir myndu syrgja gamla Eilertsen, vesaling- inn.“ „Gamlir menn mega gjarnan hrökkva upp af,“ sagði Tit, og maðurinn fyrir framan hnyklaði brýrnar gremjulega, en á næsta augnabliki sléttuðust hrukkurnar út aftur, því Ruth svaraði: „Nei, veiztu nú hvað. Gamlir menn eru hrífandi! Berðu til dæmis saman hvernig eldri herrar og yngri slá konu gullhamra: Fröken, þér eruð ansans ári sæt, segir júníór. Litla fröken, þér eruð charmant, segir seníór.*) Heyrirðu mismuninn?“ „Já,“ svaraði Tit þurrlega. „En ég vil heldur vera ansans ári sæt en charmant.“ *) Júníór = sá yngri, seníór = sá eldri. Char- mant = inndæl, yndisleg. Þýð. Þögn. Gamli maðurinn stóð upp. Nú var víst bezt að hann gerði vart við sig. í sama vetfangi greip hönd í græna dyratjaldið og þýða röddin sagði: „Líttu á öll blómin þau arna, Tit. Þú ert eflaust sammála mér, er ég segi að ég þurfi þrjár jarðarfarir. Eða hvað?“ Dyratjaldinu var ýtt til hliðar. Gamli maðurinn hneigði sig. „Ég er svo sammála yður, fröken, að ég skammast mín alveg fyrir það að ætla að- eins að fá nokkrar rósir, en ekki krans.“ „Ó------!“ stundi Ruth og leit örvænt- ingaraugum til Tit, sem hnipraði sig sam- an fyrir innan borðið og hristist öll og skókst af niðurbældum hlátri. „En ég skal minnast á það við alla vini mína og kunningja sem hugsast gæti að vildu leggja krans á gröf mína, þegar ég einhverntíma hrekk upp af —“ (Ruth leit heiftaraugum til Tit.) „— að snúa sér til yðar.“ „Mér þykir ákaflega fyrir þessu,“ sagði Ruth. „Ég átti ekki við — ég reikna alls ekki með mannslátum og jarðarförum. Það var glannalega sagt — ég--------“ „Ég skil yður.“ gamli maðurinn hneigði sig ofurlítið. Ég talaði líka glannalega, finnst yður það ekki? Og það jafnar sig þá. Og svo voru það rósirnar. Því miður aðeins rósir,“ bætti hann við og brosti. Ruth var bæði skjálfhent og óstyrk í hnjánum, er hún var að afgreiða gamla manninn, og hún laumaðist til að reka tána heldur óblítt í Tit um leið og hún lét peningana í kassann. Ruth stóð teinbein, eins og hermaður í réttstillingu, er maðurinn gekk til dyra. Hún var alvarleg — sneypt. í dyrunum sneri hann sér skyndilega við og sagði brosandi: „Litla fröken, þér eruð charmant!“ - Svo laukst hurðin á hæla honum. Ruth hneig niður á dyraþrepið að bakherberg- inu, og Tit öskraði af hlátri.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.